Gullkorn frá krökkum úr Leikskólanum Kjarrið, Garðabæ.
* Sjáðu, hvað þetta hjól er lítíð á mig.
* Mér er svo illt í maganum að ég verð að nota trefil.
* Mig langar til mömmu. Hún keyrði útfyrir framhjá áðan.
* Það er líka til jólasveinn sem heitir Rassskellir.
* Fyrst ætla ég að vera Battman, svo Superman og svo fer ég í
nudd.
* Mér er svo illt í röddinni að ég get ekki farið út.
* "Öxar við ána, skjótum upp kjána."
* Kiddi sagði = Hann Víglundur er svo þreyttur að hann
missti hjartað. Þá sagði vinur hans= Og ég missti beinin.
* Þegar englarnir koma of seint til að sækja mann, þá verður maður draugur.
* Ef maður lemur engil í hausinn þá breytist hann í ryk.
* Fóstran spurði Kalla: "Hvaða staf á afi þinn?" Kalli svaraði: "Hann á bara kross af því að hann var orðinn svo gamall.
* Mamma spurði strákinn sinn: "Hvað fékkstu að borða í leikskólanum?"Ég fékk kanínusykur."
Hann átti við kanilsykur.
* “Ugla sat á Kristi".
* Ég stækka svo mikið að fötin eru farin að minnka á mig.
* Siggi og hinir krakkarnir í leikskólanum voru að fara út að leika sér. Þá segir Siggi spekingslega: "Maður getur alveg verið á eyrunum. Það er svo gott veður úti.”
* Einn frá heimili í Grafarvogi: Ermin á brókinni er vitlaust mamma!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli