Ég lét nú ekki smá þynnku aftra mér frá því að mæta eiturhress á æfingu með Önnu Rut og Orra. Ok, kannski ekki alveg eiturhress, eða reyndar hengslaðist ég bara á milli tækja og gerði nú ekkert sérstaklega góða hluti. En ég fæ prik fyrir viðleitni, mætti allavegna! Meira en sumir geta sagt (Eyrún, taktu þetta til þín!) og svo kom hún Helga mín til að láta mig kroppatemja sig (færeyskusletta fyrir þá sem föttuðu það ekki) en ég var nú eiginlega bara látin flakka med de samme (vegna veikinda!) Svo til að fullkomna æfinguna þá fór ég og Anna Rut og fengum okkur bragðaref:oD
En það er nú meira ógeðisveðrið úti, ég þurfti bara að gjöra svo vel að pakka línusakautunum niður aftur. Ég hefði átt að hrósa veðrinu aðeins meira í gær, helv... vanþakklæti alltaf hreint! En mamma reddaði skapinu mínu með að vera búin að baka vöfflur þegar litla lasna stelpan kom heim. Mjöööög góður leikur hjá þeirri gömlu.
Annars var ég búin að upphugsa fullt til að deila með ykkur en heilasellurnar eru e-ð vankaðar núna þannig að ég læt það bíða betri tíma.
En svona í lokin, kellingin er að meika það feitt í módelbransanum. Orðin opinbert hörkutól, tékk it át...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli