Var að horfa á Sjálfstætt fólk á stöð2 og Jón Ársæll var að taka viðtal við Stjána stuð. Fyrst fékk ég pínu móral yfir að hlæja svona mikið að þessu en þetta var svona yndislega fyndið.
En ég sem sagt fór að hugsa þegar ég var að horfa á þetta (kemur mikið á óvart!) að við sem teljumst heilbrigð ættum að skammast okkar fyrir hvað við getum verið vanþakklát. Maður getur eytt heilum degi í fýlu af því að maður er of feitur eða látið áhyggjur af smámunum draga okkur niður í "þunglyndi" (er ekki að gera lítið úr sjúkdómnum) Á meðan fólk eins og Stjáni stuð og konan hans, Soffía eru smælandi útí eitt og sjá bara það góða í heiminum. Það var frábært sem Stjáni sagði, þá hafði e-r verið að stríða honum þegar hann var lítill og sagði að hann væri gallaður. Hann fór grátandi til mömmu sinnar og spurði hvort hann hefði fæðst svona gallaður. Hún sagði að hann væri ekkert gallaður, bara soldið öðruvísi. Svo sagði Stjáni, það er bara gott að vera öðruvísi. Maður fær afslátt af svo mörgu og svo er næstum því frítt í sund, árskort í sund kostar bara einn sléttann 500 kall..!
Það væri frábært að tileinka sér þennann hugsunarhátt, að sjá alltaf bara góðu hliðarnar á hlutunum.
Já stundum hefði maður gott af því að vera pínu þroskaheftur...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli