Föstudagur, enn og aftur. Þetta er magnað, hvað verður um hina virku dagana? Skilettiggi...
En kellingin er að spá í að vera stórtæk í félagslífinu um helgina og skella sér í bíó! Verst hvað mér verður alltaf illt í rassinum eftir bíóferðir, miðaverðið er ekkert annað garnapot! Yfirleitt bíð ég bara eftir ræmunni á vídeói, eða reyndar geri ég það ekki heldur. Það rann skyndilega upp fyrir mér að ég er sjónvarpsheft, þ.e sest nánast aldrei fyrir framan sjónvarpið. Ekki einu sinni til að horfa á vídeómynd. Ég held að vídeóleigufóbían mín hafi byrjað þegar undirrituð átti kærasta (já finnst ykkur það ótrúlegt?!) og við áttum það til að taka myndir á leigu en einhvern veginn kom það töluvert oft fyrir að myndinni var ekki skilað á réttum tíma og dagssektirnar urðu oft ansi háar! Ég fór í kjölfarið í verkfall og neitaði að leigja spólur, svo sofnaði ég hvort sem er alltaf yfir myndunum. Það eru ansi margar myndir á vídeóleigunum sem ég hef séð ca. fyrstu 20 mín. af. En allavegna, bíó um helgina it is:oD
Er að spá í að fara á myndina með Ben Stiller og Owen Wilson, Starsky and Hutch eða e-ð svoleiðis. Þannig að ef einhver hefur séð hana þá vinsamlegast koma með kvikmyndagagnrýni í commentadálkinn, takk;o)
Ég held að það verði about it í social lífinu mínu um helgina.En auðvitað verðið þið fyrst til að vita það ef það breytist;o)
Læt ykkur vita hvernig mér gengur að eiga líf um helgina, stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli