Í dag hélt ég að lífdagar mínir væru taldir! Ég er búin að upplifa verstu túrverki ævi minnar! Núna get ég nokkurn veginn gert mér í hugarlund hvernig hríðir eru. Fúlt samt að fá ekki eitt kríli í leiðinni. Eða ekki nema krílið sé kúkalabbi, ekki mjög fallegt afkvæmi það...
Ég er samt farin að hallast að því að ég sé ekki svo mikið hörkutól eftir allt saman, lá uppí rúmi og vorkenndi mér alveg heavy. En 4 íbúkód gera mér það kleift að fara í ísbíltúr með Tinnslunni minni:oD
Kannski bragðarefur slái á verkina, hann léttir allavegna lundina;o) (þegar mar er veikur þá má mar fá nammi!!) Og svo fer ég hvort sem er í spinning í fyrramálið og hjóla my ass off, eða allavegna hluta af honum. Við erum að tala um rass sem er um 4 fermetrar í flatarmál þannig að ég þarf meira en einn tíma í það. En stórir rassar eru í tísku þannig að ég læt einn tíma nægja, vil ekki að hann minnki of mikið..!
Well, mini-me er komin að sækja sjúklinginn.
Ég kem aftur á eftir til að liggja á dánarbeðinu og þá mun ég deila með ykkur hversu góður ísinn var.
Stay tuned....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli