Ég las það í DV í gær að flugfreyjur væru farnar að sækjast mjög mikið í að fá gyllinæðarkrem hjá lyfsölum og nota það sem hrukkukrem í andlitið. Það á víst að virka mjög vel. Það sem ég spáði aðallega í var, hverjum datt í hug að setja gyllinæðarkrem undir augum?! Var það tilviljun? Já, maður spyr sig...
Annars er Poppi byrjaður að hlaða kreatíni og er að braggast. Ég hins vegar hleð mig upp af kolvetnum (a.k.a nammi) til að geta nú tekið vel á því í lyftingunum! *uhumm, hóst hóst*
Nei, ætli ég kallist ekki bara nammigrís af guðs náð. En við erum góð saman mæðginin, styðjum hvort annað í baráttunni við að komast í form.
Annars er algjör gúrkutíð hjá mér. Lítð í fréttum.
Er reyndar að kenna spinning á morgun, miðvikudag, kl.18:45 í Sporthúsinu ef einhver áhugasamur vill mæta;o)
Mæti fersk með nýjar upplýsingar A.S.A.P, stay tuned....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli