Ég er með svona syndrom, mér finnst alltaf vera helgi! Það er alveg magnað og t.d mun skárra en að finnast alltaf vera mánudagur, þá þyrfti ég reyna að kría út Prozac hjá doksa!
Og svo var mín í fríi síðasta sunnudag og maður er svo asskoti fljótur að komast uppá lagið með svona að svei mér þá, ég held ég verði barasta í fríi núna á sunnudaginn líka! Þarf samt að sjá til, fer nebblega í aðgerðina mína á miðv.dag (allir að muna að hugsa vel til mín) og til að vanrækja ekki kúnnana mína of mikið þá ætla ég að reyna að þjálfa eins mikið og ég get þar til ég leggst undir hnífinn. Sem by the way, ég hlakka rosalega mikið til. Mér finnst endalaust þægilegt að fara í svæfingar en þetta er kannski hlutur sem maður á ekki að segja frá..!
Jæja, er farin að kroppatemja (ég er svakalega sleip í færeyskunni, reyndar sagði einn miðill við mig að ég hefði verið færeysk sjómannskona í einu af mínum fyrri lífum. Er sko mjööööög gömul sál (enda þroskuð eftir því!))
Stay tuned ef þið viljið vita hvernig ég stend mig um helgina;o)
P.s ég mæli ekki með því að kenna spinning daginn eftir að maður fer í brasilískt vax..!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli