laugardagur, mars 20, 2004

Ég eignaðist...

líf í dag!! já, minn skellti sér á handboltaleik, ekki bara einn heldur tvo! Byrjaði á því að fara að horfa á Valsstelpurnar taka KA-stúlkurnar í rumpen (a.k.a rass) en þar sem úrslitin lágu nokkuð ljós fyrir í hálfleiknum þá ákvað ég að halda áfram að standa mig í stykkinu í vinkonuleiknum og fór á Gróttu-KR vs. FH að horfa á Önnur Rut (sem spilar með FH) en FH-stelpurnar töpuðu því miður. Og ég sem hélt að ég væri happa! :-/

Og svo hélt ég bara áfram útá lífinu og dró Stjána (sko, minntist á þig!) eyjalunda með mér í mat á Stælinn og slúttuðum svo rúntinum í ísbíltúr. Og tókum nottla nokkra Laugara í góða veðrinu.

En nú er gamla konan alveg búin á því og ætlar að skutla sé uppí sófa að horfa á Gísla Martein (og ef mar horfir á hann þá ætti maður að fara að hugsa sinn gang og spá í hvort ekki séu til betri leiðir til að eyða laugardagskvöldi!) Jæja, gotta go...

Engin ummæli: