Það varð hópferð í bíó. Ég, Jói, Orri, Habba Kriss og Snorrinn skelltum okkur á Starsky and Hutch og ég mæli sko alveg með henni. Langt síðan ég hef hlegið svona mikið í bíói. Náttúrulega algjör aulahúmor en þetta var hin besta skemmtun.
Strákurinn sem afgreiddi okkur í sjoppunni er oft að æfa niðrí Sporthúsi og ég lét hann lofa að það yrði aldrei talað um þetta. En að sjálfsögðu er ekkert að tala um af því að ég keypti ekkert nammi! En strákarnir hins vegar, pjúff,þið hefðuð átt að sjá magnið hjá þeim!!!
hehe, líklegt að ég færi í bíó án þess að fá mér nammi. En í mínum heimi þá gerðist það ekki...
Jæja, gotta go work out. Já, mar þarf að bæta upp fyrir að vera nammigrís.
Bless á meðan...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli