laugardagur, mars 27, 2004

Nágrannar frá helvíti!

Kræst, ég á nágranna dauðans! 2 pjakkar 8 og 12 ára eða e-ð svoleiðis búa fyrir ofan mig. Þeir sem þekkja mig vita hversu mikið gaman ég hef að börnum en aldrei fyrr hefur mig langað að leggja hendur á krakkaskrípi! Það er endalaust tramp og hlaup og aldrei jafn slæmt og á kvöldin þegar mar er að reyna að fara að sofa. Og núna, as we speak, þá eru þeir greinilega í fótbolta með keilukúlu. Þvílíku dynkirnir! Aaargh, ég er að verða geðveik(ari)!!!! Ég vona þeirra vegna að þeir mæti mér ekki á gangi í dimmu húsasundi!!! Mwuahahahaha....

Annars er ég núna að horfa á stelpurnar mínar í Val spila við Stjörnuna og ég er ekki alveg að meika það:-/ Ég HATA að geta ekki spilað handbolta:o( Get ekki hort á meira, ætla á 3. brennsluæfinguna mína í dag. Minn ætlar að vera með six pack í sumar svo að ég geti farið að láta sjá mig á sundlaugabökkum borgarinnar;o)

Engin ummæli: