Mér líður allavegna þannig. Ég hef aldrei á ævinni séð svona útblásna putta og svo eru þeir svo litlir að þetta er eiginlega BARA fyndið. Þeir eru samt pínu krúttlegir en ég ætla sko ekki að líta í spegil! Ef puttarnir eru þrútnir þá er andlitið það mjög líklega líka:-/ En þetta fylgir víst.
En matarlystin er ekkert sérstök, fæ eiginlega bara ullabjakk í magann við að hugsa um mat og ég get ekki einu sinni hugsað mér að fá mér nammi!! Þá er sko mikið sagt, ef Bjarneyju Yfir-nammigrís langar ekki í nammi! En ég er svo sem í megrun þannig að þetta hjálpar mér bara að ná six-packinum mínum aftur:oD
Annars er mjöööög lítið að frétta af mér, skiljanlega kannski. Er reyndar búin að vera í sjokki útaf þessu voðaskoti á Selfossi. Hvar fá tveir 12 ára guttar skammbyssu með hljóðdeyfi?! Þetta er svo sorglegt og manni finnst að svona eigi ekki að geta gerst á Íslandi. En maður segir þetta svo sem í hvert skipti sem eitthvað svona óhugnalegt gerist, eins og t.d líkfundurinn. Já það er víst til jafn sick fólk hér og annars staðar. Skrýtið hvað er til mikið af fucked up fólki en samt finnst mér alltaf fólkið í kringum mig og þeir sem ég kynnist nánast alltaf hið bestasta fólk. Mig langar að vita hvar allt þetta brenglaða fólk heldur sig, eða kannski langar mig ekkert að vita það. Finnst ágætt að það haldi sig frá mér...
Jæja, þarf að fara að leggja mig. Er orðin eins ungabarn aftur,alltaf lúllandi. Reyndar ekki mjög sætt ungabarn! Anyways, gotta go lúlling...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli