miðvikudagur, mars 24, 2004

úr ýmsum áttum...

Læknirinn við Bush:"Like everbody else you have a right and a left brain, but there´s nothing right in your left brain and there´s nothing left in the right on..."

hahaha, hvílík snilld. Og mesta snilldin er sú hvað þetta er rétt! Ég hef nú yfirleitt ekki verið að útlista neitt sérstaklega mínar stjórnmálaskoðanir (kannski af því að ég hef vit á því að segja ekkert of mikið um það sem ég hef ekkert sérstaklega mikið vit á!) EN nú er mál að ég láti gamminn geisa um pólitík! Svonasvona, engar áhyggjur. Það eina sem ég vil segja er að ég vona að Bush verði ekki endurkjörinn og ég vil ekki að Siv Friðleifs víkji úr embætti umhverfisráððherra! Ég er nebblega líka á móti því að drepa rjúpur og ég vil ekki Bush áfram af því að ég er á móti því að Palestínumenn séu nánast réttdræpir í augum Ísraela sem hafa stuðning USA! Svo mörg voru mín pólitísku orð, ekki orð um það meir. En það er samt FULLT meira sem fær til að fyrirlíta Bush og það er ótrúlegt að svona fordómafullur, íhaldssamur og illa gefinn einstaklingur skuli fá að stjórna valdamesta ríki heims! Ussbara..!

Ég komst líka að ansi miklu um sjálfa mig í síðari hálfleik innhverfu íhugunnar minnar í dag,

í 1.lagi þá er ég ofvirk. Komst að því af því að í þau skipti sem ég verð dofin er eftir kaffidrykkju og fitubrennslutöfluát, reyndar var ég líka að byrja á nýju vítamíni sem heitir Spirulina (mæli með því, segi betur frá því og vítamínfíkn minni í bókinni sem ég mun gefa út fyrir jólin. Bókin fjallar um það hversu erfitt er að þurfa að lifa með vítamínfíkn og ég mun tala mjög opinskátt um fáfræðina og fordómana sem ríkja í þjóðfélaginu í garð þeirra sem þjást af vítamínfíkn SEM ER SJÚKDÓMUR!) anyways, ég er öll út um allt eftir að ég byrjaði á Spirulina! Ég tala reyndar líka rosalega mikið, þarf kannski aðeins að vinna í að minnka það:-/

í 2. lagi, ég er ættleidd. Er 99% viss um það, ástæða: ég á NÁKVÆMLEGA EKKERT sameiginlegt með öðrum fjölskyldumeðlimum. (tekur of langan tíma að reyna að telja það upp en believe you me, ég er svoooo ættleidd!)

í 3.lagi, ég trúi ekki að ég hafi gleymt að segja ykkur að ég keypti mér rauða skó um daginn. Uppháa diesel streetara. Keypti þá fyrir síðasta djamm þar sam gamla konan á mjög bágt með að vera í háhæluðum skóm þannig að ég keypti mér þægilega skó til að deyja ekki í löppinni eftir djammið. En hvað gerist, mér var samt mjöööög illt í hnénu fyrstu 2 dagana eftir djammið! Niðurstaða: Það hefur ekkert með hælana að gera að mér verður illt, ástæðan er einfaldlega sú að þegar ég drekk þá verð ég algjör hálfviti sem heldur að hann sé íþróttaálfur og heldur virkilega að öllum langi að sjá hann gera armbeygjur með vinstri fót yfir aðra hendina (en bara svo að þið vitið það þá get ég líka gert 10 armbeygjur með klappi!) og klykkja svo út með breikorminum og splitti í boði Sporthússins!

í 4.lagi, ég er búin að fatta hvernig ég get eignast kærasta! Ég fæ mér bara ljótann kærasta. Ég fékk uppljómun þegar ég keyrði niður Laugaveginn í dag og sá að minnsta kosti 3 pör þar sem stelpan var nokku sæt (enda eru flestar íslenskar stelpur frekar kjút) en gaurinn bara algjörlega far from it. Þannig að galdurinn er, lækka standardinn og þá verður eftirspurnin vonandi meira en framboðið.

í 5.lagi, ég dreg lið nr.4 tilbaka. Ætla að halda mig við upphaflegu áætlunina mína og vanda valið! Ekkert gallað DNA í mitt lið...

í 6.lagi, Djö, er vítamínið að virka! Ég gæti haldið endalaust áfram að skrifa en þar sem ég er farin að vorkenna þeim sem eru að lesa þetta (ef einhver komst svona langt) þannig að við látum þetta gott heita í bili.
Stay tuned fyrir upprennandi brainstorming...

P.s Það gæti reyndar verið að tobleronið sem ég fékk mér í hádegismat eigi sinn þátt í þessarri gríðarlegu orkuuppsöfnun innra með mér, en við ræðum það ekki frekar..!


Engin ummæli: