Jæja, er komin aftur.
Náði að lúlla nokkuð vel í nótt, sem er kannski ekki skrýtið. Parkódín forte rotar mann alveg.
En ég lenti í soldið skrýtnu í gær. Yfirleitt hef ég vaknað eldhress eftir svæfingar og bara farið beint að háma í mig e-ð gúmmelaði. Nema í gær, þá vaknað ég grátandi. Ekki af verkjum heldur fékk ég martröð! Mig dreymdi að ég væri að deyja í svæfingunni. Það var frekar scary af því að þetta var svo raunverulegt. En sem betur fer hætti "hörkutólið" nú að gráta fyrir rest;o) Svo á leiðinni heim fékk ég þetta þvílíka svima/ógleðis/yfirliðskast og strikið var sett á aktu taktu og minn svolgraði í sig 1/2 líter afappelsíni á ca.2 mín. og leið mikið betur. En ég held ég afsali mér titlinum Hörkutól, eins og sést af því sem ég er búin að skrifa þá kallast ég með réttu lilli auli...
En nú þarf ég að fara aftur uppí rúm, stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli