Hef ekki mikið að segja en einhvern er það nú svo að mar verður háður þessu bévítans bloggi og finnst að maður hafi einhverja tilkynningarskyldu. Þannig að ég vil nú ekki bregðast "aðdáendum" mínum (og sérstaklega ekki uppáhalds, duglegasta nemandanum mínum henni Evu (Halldórs. sem margir muna kannski eftir þegar hún gerði garðinn frægann með Víking í boltanum hérna í den. Um svipað leyti og undirrituð var uppá sitt besta, ca.í 5.flokki...)) hahaha, nei við entumst aðeins lengur. Ekki mikið samt...
Reyndar er kellingin byrjuð aftur að æfa. Mikil sæla og miklar harðsperrur (Orri, ef þú lest þetta þá voru þetta mjöööööög léttar æfingar og teljast eiginlega ekki með. Byrja að sjálfsögðu ekki formlega fyrr en með þér á mán!)
Sá það reyndar í gær að ég er næstum því orðin flatrassa! Ok, that will be the day að Bjarney fái lítinn rass en hann jaðrar við það núna! Gengur ekki, beint í framstig. J-Lo yrði ekki sátt við gemlinginn núna.
(Innskot: bara svo að þið vitið það þá mútaði Eva mér til að minnast á sig. Ég get minnst á ykkur líka hérna á blogginu fyrir sanngjarna þóknun.)
Svo er allt að gerast um helgina, ætla að hjálpa Svövu fitnessdrollu á morgun. Eða hjálpa henni allavegna að borða súkkulaðirúslurnar:oD Og svo ætla ég að bera á hana olíu en er til í að fela það verkefni öðrum fyrir ríflega þóknun (já, ég er blönk!) Neinei, þetta verður voða gaman. Það er sem sagt Galaxy fitnessmót á morgun og hinn. Og svo NEYÐIST ég til að fara á vorfagnað í Valsheimilinu á laugardag. Ætla samt að reyna að muna eftir þessu djammi. Markmið helgarinnar: ekki æfa 3x sama dag og ég djamma, borða vel og ekki drekka tekíla á 5 mín. fresti. Spennandi að sjá hvernig þetta fer...
já, ég skellti mér í Perluna í gær. Flestir sem ég hitti voru að tala um lítið úrval en auðvitað var mín ekki í vandræðum. Stóð með fangið fullt af dótaríi. Það sem ég keypti var: 2 skópör (NIKE eróbikk skór og Puma streetara), íþróttatoppur, 2 bikiní, æfingabolur á Svein Inga og O´Neill þykk peysa. Verð:11.300.- og til samanburðar má nefna að upphaflegt verð á Nike skónum einum og sér var 11.900.- Kellingin kom sem sagt út í stórgróða :oD
Jæja, er farin að labba til skóna....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli