Hversu latur getur maður orðið? Þegar mar nennir ekki einu sinni að leggja sig þá hlýtur botninum að vera náð! Annars er ég ekki búin að gera neitt síðan ég skrifaði síðast, hef þar af leiðandi lítið að segja EN ég fæ prik fyrir viðleitni.
Ég er samt búin að sjá það að ég er að halda blogginu á lífi, þessir so called bloggarar í kringum mig eru ekki búnir að girða í brók eins og byrja að blogga aftur af krafti eins og búið var að tala um!
Ég hef verið að lenda í því á djamminu upp á síðkastið að fólk, sem ég hefði aldrei getað giskað á að myndu einu sinni vita um bloggið mitt, labbar upp að mér og tjáir mér að það lesi alltaf hlaupandi hlunkinn. Það gleður mitt litla hjarta að einhver nenni að lesa bullið úr mér:oD takktakk
úff, ég er mikið að spá í að fara bara að lúlla for good núna. Sofa þar til á morgun. Held ég skuldi alveg smá svefn. Góða nótt...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli