Það er allt í uppnámi hjá kúnnunum mínum sem eru núna hver öðrum duglegri við að sýna fram á að vera duglegasti nemandinn. Verst að samkeppnin virðist snúast um hver gefur mér bestasta páskaeggið þannig að það er ekki ósennilegt að undirrituð snúi vel í holdum tilbaka úr páskafríinu. En fyrir þá kúnna mína sem lesa bloggið mitt þá geri ég ekkert upp á milli ykkar sko. Mér finnst þið öll frábær! :oD En þið þurfið samt ekkert endilega að hætta að múta mér. Við skulum bara kalla það frjáls framlög sem renna til góðgerðarmála...
Og svo er ég búin að gera 2 nýjar uppgötvanir sem gætu leitt til þess að ég muni flytja í Hafnarfjörðinn.
Í 1.lagi Fjarðarkaup, þvílíkt brilliant verslun! Það er gjörsamlega ALLT til, meiraðsegja fatalitur sem ég er búin að leita að endalaust lengi, ekki það að endalaust geti verið stutt. Anyways, það var bara einn svartur pakki eftir þannig að ég trúi því að örlögin hafi ætlað mér að endurlífga svörtu fötin mín sem eru ekki alveg svört lengur....
Í 2.lagi er BESTASTA sólbaðstofan þar. (myndi hafa link þangað ef SUMIR væru búnir að setja upp heimasíðu!) En það er Stjörnusól, sem er við hliðina á verslunarmiðstöðinni Firðinum. (p.s Síminn þar er: 555-7272) Ég er búin að fara í 2 tíma og er orðin eins og Michael Jackson, nei ekki góð samlíking þar sem hann er eiginlega orðinn albínói. Ég er orðin eins og Janet Jackson. Bara með lítil brjóst. Verst að sólbaðstofan reddar því ekki líka. En þeir geta byrjað að selja geirvörtuskraut og þá getur Janet byrjað að kalla mig mini-me...
Úr einu í annað, ég var búin að minnast á að Víkingurinn gaf mér púkapáskaegg nr.4, þið tókuð örugglega eftir því að það var PÚKApáskaegg, en ég á eiginlega hrós skilið fyrir að hafa klárað það kl.8:45 í morgun (já ég veit, hollur og staðgóður morgunmatur!) var búin með rúmlega helminginn í gærkvöldi, það var sem sagt páskaegg í forrétt og eftirrétt hjá mínum í gær (ekki segja Vigga það) og svo kláraði ég restina í morgun. Hversu mikið átvagl getur ein manneskja verið??? Það var ekki eins og ég hefði borðað e-ð lítið í afmælinu hjá Lilju, borðaði lang mest þar. Ef ég myndi ekki æfa svona mikið þá væri ég ábyggilega í kringum 150 kg! En ef ég myndi ekki æfa svona mikið þá myndi ég kannski ekki heldur borða svona mikið, vona ég..! En pointið er allavegna að mér finnst þetta vera afrek, að klára páskaegg af þessari stærðargráðu á innan við 12 tímum. Fyrst Óli Stefáns fékk fálkaorðuna fyrir handbolta þá finnst mér að Óli grís megi alveg fara að renna til mín hýru augu og hafa mig bakvið eyrað fyrir næstu orðuveitingu...
Já shit mar, gleymi ég næstum því að segja frá því! Hann Orri, old buddy old pal, sem reyndi í gær að telja mér trú um að hann ætlaði bara að fá sér nokkra bjóra var ennþá fullur þegar ég hringdi í hann um 2-leytið í dag! Fussumsvei, ég fer sko að dömpa þessum so called æfingafélögum mínum! Ég þurfti bara að gjöra svo vel að æfa með einum kúnnanum mínum í dag. Sem by the way var að koma frá útlöndum en keypti ekkert handa mér þannig að hann kemst ekki einu sinni inn á topp5! Ussbara...
En nóg í bili, ætla að brainstorma í smástund. Kem ábyggilega bráðum aftur. Stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli