þriðjudagur, apríl 06, 2004

HARÐSPERRUR DAUÐANS! og veikindi...

Þá er minn byrjaður að æfa aftur að krafti og vá hvað ég er með miklar harðsperrur! Tókum brjóst í gær og hef aldrei lært hugtakið að byrja rólega. Kenndi svo líka spinning í gærkvöldi og núna er ég lasin. Fór að þjálfa í morgun og kúnninn minn eiginlega bara rak mig heim með orðunum:" Bjarney, ég er að horfa á þig hvítna! Komdu þér heim!" Og minn fór heim og uppí rúm. Er samt töluvert skárri núna, ætli ég reyni ekki að fara að þjálfa seinnipartinn. Má nú ekki valda uppáhalds duglegasta nemandanum mínum, henni Evu, vonbrigðum.

Svo eru allir að spyrja mig hvort ég ætli að kaupa mér páskaegg. Mér finnst bara ekki að ég eigi að þurfa að kaupa míns eigins páskaegg. Mér finnst lágmark að ég eigi leynilegan aðdáanda sem gefur mér páskaegg! Eða einhver sem þolir mig ekki og vill að ég fitni. Nei, ég á sko ekki að þurfa að splæsa þessu á mig sjálf. Fúlt samt ef ég á hvorki vin né óvin sem gefur mér páskaegg. Þá mun ég eiga páskaeggjalausa páska:-/ Kannski ég splæsi einu kindereggi á mig og Poppa...

Aftur í rúmið, verð að ná'essu úr mér...

Engin ummæli: