sunnudagur, apríl 04, 2004

Hversu mikið pirrandi geta krakkar orðið?!

jájá, krakkagormarnir á hæðinni fyrir ofan eru enn og aftur komnir í gírinn. Annars held ég að Orðtakið:"what goes around comes around" sé að bíta mig í hælana núna. Málið er nebblega að ég og minn ástkæri bróðir vorum krakkar úr helvíti og ég hefði ekki ásakað nágrannana þó þeir hefðu lagt á okkur hendur. Sem reyndar gerðist einu sinni. Það var brjáluð kelling sem lét svein Inga skalla gangstéttina, það var reyndar alveg steikt atriði þar sem við vorum ekki einu sinni svo annoying í það skiptið. Anyways, púkarnir hérna uppi hefðu svo sem alveg gott af því að láta aðeins tuska sig til. Veit samt ekki hvað ég á að gera, á ég að fara að kvarta? (svara í commenta dálkinn takk) en þá er ég orðin eldgömul og þar sem ég hef ENGA complexa yfir að vera orðin 25 ára og komin með hrukkur þá veit ég ekki alveg hvort ég nenni að standa í því. Ég gat nú ekki annað en hlegið að sjálfri mér þegar ég var að hlusta á sjálfa mig bitchast í krökkum sem voru að reykja fyrir utan Sporthúsið. Þeir voru sko við innganginn og ég las þeim pistilinn yfir hvað þetta væri mikill dónaskapur og algjörlega óviðeigandi. Samt var lítil rödd í hausnum á mér sem sagði: "Pjúff hvað þú ert orðin gömul!" En ég held að mitt hlutverk á jörðinni sé að ala upp þennan óaldarlýð sem gengur um á götum bæjarins undir nafninu UNGLINGAR!

Talandi um slæmt uppeldi. T.d þessa stundina er ég algjörlega vanrækt. Haldiði ekki að mínir so called foreldrar hafi ekki farið í fermingarveislu og skildu ekkert eftir handa mér að borða! Þannig að ég neyddist til að fara út í sjoppu og kaupa mér nammi í kvölmat. Ég er að íhuga að kæra þetta til barnaverndarnefndar, er ekki að fíla þessa vanrækslu:o(

Stundum þegar ég hef lesið viðtöl og þar er spurt:"hvað fer mest í taugarnar á þér?" þá hef ég oft velt fyrir mér hverju ég myndi svara. Þetta er samt svar sem breytist algjörlega milli daga. t.d núna myndi ég segja krakkaófétin á efri hæðinni. En þegar ég fór í Kringluna í dag þá fann ég hvað það fer massívt í taugarnar á mér þegar fólk leggur bílunum sínum illa. Mér finnst það endalaust tillitsleysi að leggja yfir línuna. Lenti reyndar líka í því þegar ég var að skera niður að það munaði ekki miklu eitt skiptið að ég hefði farið út og lagt hendur á einn illa lagðan bíl í Smáralindinni. Sem er mjög ólíkt mér þar sem ég er einstaklega dagfarsprúð manneskja sem er ávallt í mjööööög miklu jafnvægi! Ég var líka að bölva eigandanum, djö... helv.... egóisti o.s.frv. og þá fattaði ég að ég er líklega einn mesti egóisti alive en ég er allavegna tillitsamur egóisti og legg ekki yfir línur! Og stíg heldur ekki á strik...

Jæja, ætla að tölta yfir til Sollubollu og Binnapinna í stutta heimsókn fyrir svefninn. Þar til næst...

Engin ummæli: