laugardagur, apríl 24, 2004

Edrúpartý í fullum gangi...

Þá er crewið mætt á staðinn, ég, Svava, Jói, Orri og Gummi erum að verða ready að golla í okkur allskyns kræsingum! Við mættum öll með einn rétt, Jói kom með humarsúpu, Orri pastarétt, Svava kjúklingarétt og Gummi snilldarrétt sem er samsettur úr ólífum, mozzarellaosti og cherrytómötum. Enlitla prinsessan fékk að sleppa við að elda:oD Held samt að það sé af því að ég er annáluð fyrir að vera vondur kokkur þannig að mitt hlutverk var að fara í Nammiland og kaupa eftirrétt. Og trúið mér, það var sko shoppað!! Ég er nebblega rosalega góð í stærðfræði og ég reiknaði það út að þar sem við sleppum öllu áfengi í kvöld þá eigum við inni ansi margar hitaeiningar. Og það verður sko bætt upp í kvöld! En allt jukkið verður svo notað í bakæfinguna á morgun, sem að sumu leyti útskýrir af hverju ég er með svona breitt bak. Það er útaf öllu nammiátinu í gegnum tíðina;o)

Meðan ég man, þá vil ég fá útskýringu á af hverju ég á að leita mér hjálpar. Er það vegna heimsku, ofhugsis eða bara allmennrar geðveiki? Þætti vænt um að fá svar svo að ég geti sagt sála af hverju ég er komin til hans...

Fór enn og aftur á kraftlyftingamót í dag. Það er svo gaman að sjá alla geðveikina í kringum þetta sport. Hvet alla til að fara allavegna einu sinni á ævinni á svona mót. Algjör snilld.

Jæja, maturinn er tilbúinn. Verði okkur að góðu...

Engin ummæli: