Já, nú er það séð&heyrt sem er að koma kellunni á framfæri. Fór reyndar bara með sem backup fyrir einn kúnnann minn. Það er alveg hreint með endemum hvað ég myndast illa. En mar er allavegna á jaðrinum við að vera heimsfrægur á Íslandi. Fyrst er það forsíðufyrirsæta á 1.tölublaði Hörkutóls (sem er blað kraftlyftingasambands Íslands, ábyggilega mjöööööög margir sem sáu það!) og svo núna Séð og heyrt. Hvar endar þetta? Já maður spyr sig....
Annars er ég orðin sprellhress eftir veikindin sem ég held að hafi kannski ekki endilega verið veikindi heldur meira 3.dagur í þynnku.
Valsstelpurnar unnu Víking í gær, congrats;o* Sem þýðir að þær eru komnar í 4 liða úrslit. Mikil gleði á þeim bænum.
Ekki má gleyma ammælisbörnum, mín ástkæra systir Hulda og Ella naglakonan mín áttu afmæli í gær og svo mín yndislega Lilja á afmæli í dag. Til hamingju allar saman.
Vel á minnst, það verður gleðigleði í kvöld þar sem Liljan mín ætlar að bjóða okkur uppáhalds stelpunum sínum í mat:oD Svo verða ábyggilega einhverjar sem halda gleðinni áfram. Stay tuned ef þið viljið hvort pásan mín haldi....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli