föstudagur, apríl 23, 2004

Ritstíflan hrjáir mig ennþá :-/

En þar sem ég hef orðið fyrir aðkasti vegna bloggleti minnar þá sá ég mér ekki annað fært en að reyna. Ég fæ þá allavegna prik fyrir viðleitni.

Það sem kannski ber hæst þessa dagana er að ég og Poppi höfum núna verið aðskilin í heila viku. Hann er greinilega vanræktur af öðrum fjölskyldumeðlimum á Hjaltó sem gleyma tilvist hans! Reyndar tók hann líka upp á því að fara í mótmælasvelti til að fá börnin heim. Eða reyndar til að fá að koma með mér í Lómó. Tek Svövu með mér í bíltúr á næstunni að ná í hann. Ef ég á að segja eins og er þá sakna ég litla kvikindisins...

Fór með Gumma, old buddy old pal, í dag í Intersport að versla (eins og allir vita þá gjörsamlega HATA ég að versla íþróttaföt! *hóst*) En hann frétti að ég væri með svo breitt bak að það væri tilvalið sem auglýsingaskilti. Þannig að á næstunni mun ég spranga um merkt bestu sólbaðstofunni í heiminum (mikið rétt, er að tala um Stjörnusól) Skrýtið samt hvernig manneskja sem er með svona breitt bak getur verið með svona lítið hjarta. Skilettiggi..!
Talandi um að vera með lítið hjarta. Ég hef nú stundum talað um þegar ég míg næstum því á mig af hlátri þegar ég hef lent í því að vera í brennslu og 70 mín. byrja. En í brennslunni minni um daginn þá fór ég bara næstum því að gráta. Og yfir hverju? Jú Oprah!!!
En þetta var samt í alvörunni geðveikt sorglegur þáttur. Það var verið að tala um einelti í bandarískum grunnskólum og m.a sýndar myndir þar sem krakkar voru lúbarðir í skólabílnum á hverjum degi. Þetta var ömurlegt, og fórnarlömbin að segja frá sinni reynslu. Þetta var átakanlegt og ég skammast mín sko ekkert fyrir að klökkna yfir þessu. Hefði samt kannski alveg viljað vera heima í sófanum en ekki fyrir framan 50 pungsveitta einstaklinga...

Ég er orðin rosalega sybbin, er að spá í að slútta þessu. Þarf bara að klára að dánlóda 2 lögum með Britney og svo er ég gúd tú gó í háttinn. Ég sver það að fordómarnir sem ég hef fundið fyrir í minn garð vegna tónlistarsmekks minns hafa þríeflt mig í að vera píkupoppari dauðans! Er meiri hnakki núna then ever. You will not break me!!! Þið illa innrættu rokkarar sem leggið mig í einelti fyrir að elska Blue útaf lífinu, Ok kannski ekki alveg svo mikið en Duncan (eða Dunc eins og við félagarnir köllum hann) er alveg þess virði að bíða eftir. (ég ætla sko að giftast honum einn daginn! Oh men, núna er ég farin að hljóma eins og 15 ára gelgja, það er ekki gott. Næstum því jafn slæmt og að byrja að ríma!) Anyways, allir sem leggja mig í einelti fá frunsu (já veriði bara fegin að ég sendi ykkur ekki til helvítis!)

Well, er farin í háttinn. Strembinn dagur framundan, vinna, 2 æfingar og svo edrúpartý og NAMMIDAGUR:oD

Hafið það gott og verið dugleg að borða skott. Megið ráða hvernig skott þið borðið, en ef e-r kemur nálægt skottinu á Poppa þá getiði sko bókað að fá frunsu, Á BAKIÐ..!

Humm, ég er víst dottin útaf netinu. Ætli ég verði ekki að bulla e-ð þar til hjálpin kemur. Annars er mér meinilla við tölvur, við erum ekki að fatta hvor aðra. Ég vil meina að tölvan sé heimsk en hún svarar í sömu mynt. Og ég er náttúrulega algjörlega ósammála. En ef ég er heimsk, myndi ég þá vita það? Eða er maður svo heimskur að maður fattar ekki að maður sé heimskur? Það hlýtur samt að vera fúlt að vera heimskur og vita það. Þá er nú eiginlega skárra að hafa ekki hugmynd um það. Æ, ég veit það svo sem ekki. Vona allavegna að ég sé ekki heimsk en haldi bara að ég sé geðveikt gáfuð. Eða kannski ekkert geðveikt gáfuð, bara svona pínu vitur. Veit allavegna smá. Veit t.d muninn á einsykrum og fjölsykrum:oD Reyndar fæ ég líka borgað fyrir að vita það..!
Úff nú fer ég upp í rúm og get ekki hætt að hugsa um hvort það sé ég eða tölvan sem er heimsk. En ég hlýt að vera gáfaðri af því að ég restartaði bara modeminu og netið hrökk inn. Já svona er maður nú klár. Huh!

Jæja, þá ætla ég barasta að segja góða nótt. Þar til næst, bæ á meðan...



Engin ummæli: