Nú er ég orðin opinberlega fræg! Segi það og skrifa! Haldiði að kellingin hafi ekki verið nafngreind í "hverjir voru hvar" í Fókus í DV. Þar stóð orðrétt: "Á Thorvaldsen var margt um manninn og meðal annars var einkaþjálfarinn Bjarney Bjarnadóttir í miklu stuði á dansgólfinu ásamt Halldóri Kolbeins úr Prófíl" (veit ekki hvor þetta hafi átt að vera Ásgeir Kolbeins en allavegna var ég ekki ÁSAMT neinum á dansgólfinu, þekki allavegna engann Halldór...) Fór meira að segja bara á dansgólfið í ca.5 mín. Er ekki mikið fyrir að dansa á djamminu. Nema þau örfáu skipti sem ég ÞARF að sýna íþróttaálfnn. En ég allavegna þurfti að gráta úr hlátri þegar ég las þetta. Nú hlýt ég bara að teljast celebrity!
En ég er að hugsa um að hætta á toppnum...
Himmi, varstu ekki búinn að lesa að ég kasta ábyrgðinni yfir á Jóa?! Efast samt um að hann vilji þjálfa þig þannig að málið er dautt....
Jæja, þarf að fara að skrifa spinning CD. Gleðigleði. Bæ á meðan...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli