föstudagur, apríl 16, 2004

Vildi bara deila því með ykkur að...

...ég er komin í gott skap:oD Kenndi spinning í gær og ég tók allavegna vel á því, það losaði um smá pirring. Þjálfaði svo pínu meira og skellti mér sð því loknu í gufu og ljós. Hver fer ekki í gott skap eftir smá egó treatment???
Svo skein sólin þegar ég fór út klukkan 6 í morgun og það var ægilega gott fyrir sálartetrið. Þó að það sé kalt úti þá munar ótrúlega um að sjá sólskin þegar maður lítur út um gluggann. Og að fá að setja upp sólgleraugun þegar maður er að keyra kemur manni alveg í fíling.

Annars hlakka ég bara rosalega til að eiga rólega helgi og slappa af. Er reyndar að fara að flytja á morgun, MIKIL GLEÐI! og svo held ég saumó á sunnudag. En ég ákvað að níðast ekki alveg strax á nýju sambýliskonunni minn, henni Svövu, þannig að ég held hann heima hjá mömmu&pabba. Ákvað að líta á það sem útflutnings"partý."

Jæja, gotta go að þjálfa í góða skapinu mínu:oD

P.s til hamingju með afmælið elsku uppáhalds Eva mín;o* Kellingin orðin kvart hundrað ára, farið að síga á seinni hluta ævi okkar. Velkomin í hópinn gamla;o)

Engin ummæli: