föstudagur, apríl 23, 2004

Sitt lítið af hverju...

Ég vil byrja á að óska Valsstelpunum tl hamingju með sigurinn á Stjörnunni í gær. Valsstelpurnar gerðu þetta samt óþarflega spennandi og maður var á tauginni nánast allann tímann. En þær unnu leikinn og eru þar með komnar í úrslitarimmuna. Silla kom til mín í gær og kallaði mig happadýr og það gladdi svo sannarlega mitt litla hjarta;o) Og svo var það kannski líka pínu skot á mig að ég er búin að vera mjöööög löt að fara á leiki í vetur sem er ekki nógu gott mál þar sem 4 af mínum bestu vinkonum spila með Val. Jæja, ég verð dugleg að mæta í úrslitunum...

Sambúðin í Lómó gengur vel. Fólk er samt farið að setja upp skrýtin svip af því að ég tala alltaf um sambýliskonu mínu. Hehe, þau mega alveg misskilja það.
Við elduðum meiraðsegja í gær, vorum voða fjölskyldulegar. Fíapía systir Svövu kom í dinner og alles. "Elduðum" tortillas með kjúklingabringunum sem ég grillaði á þriðjudag. En það var rosalega gott:o)
Ég og Svava erum báðar að mjókka eftir að við hófum sambúð. Mjög gott mál. Enda líka eiginlega óheilbrigt heilbrigði í Lómó þessa dagana.

Ég var enn og aftur skömmuð í gær fyrir bloggið mitt:-/ Mér var tjáð að ég væri e-ð svo andlaus! Það væri ekkert gaman að lesa það þessa dagana. En stundum fær maður bara ritstíflu. Ég get ekkert að þessu gert. Nema kannski að ég fari að eignast e-ð líf, þá fer ég kannski að hafa e-ð að skrifa um. Ég efast um að þið nennið að lesa um æfingarnar mínar, sundferðirnar mínar eða hvað ég er búin að vera dugleg í mataræðinu. Sem er eiginlega það eina sem hefur verið að gerast hjá mér undanfarið.

Ætla reyndar að reyna að halda "partý" (á reyndar eftir að tala um það við Svövu, en hún er örugglega til í það;o))
á laugardag, svona edrúpartý. Þar sem verður dottið í matar-og nammisukk og glápt á dvd.

En talandi um nágranna frá helvíti! Ég hélt ég væri sloppin fyrir horn eftir að ég flutti frá andsetnu krökkunum á Hjaltabakkanum BUT NO! Kl.4 í nótt vaknaði ég við að kellingin á hæðinni fyrir ofan okkur var þrammandi á parketinu í háhæluðum skóm!!! Hvað er að??? Hún hlýtur að fatta að fólk á að mæta í vinnu daginn eftir, ekki nema hún sé allverulega greindarskert. Eða alveg sama, og ef henni er alveg sama þá á hún skilið að fara til helvítis fyrir þetta uppátæki. OK, kannski einum of mikil dramatík að senda hana til helvítis en ég vona allavegna að hún fái frunsu! Mwuahahahahaha...

By the way, gleðilegt sumar og verið dugleg að borða humar.
Úff ef ég er byrjuð að ríma þá er kominn tími til að slúttessu!
Þar til næst, bæ á meðan.

Engin ummæli: