Loksins get ég gefið mér tíma til að deila lífi mínu með ykkur. Ég hefði samt ábyggilega trassað það lengur en mér voru farnar að berast hótanir með sms-skeytum um að ef ég myndi ekki blogga fljótlega þá myndi sá hinn sami fara að finna sér nýjan bloggara!! Þetta kallar maður framhjáhald af versta toga! Ég læt sko ekki svona bíræfinn einstakling komast upp með annað en að halda áfram að lesa bloggið MITT..!
Anyways, minn er sem sagt fluttur að heiman og sambúðin hefur allavegna gengið vel hingað til. Meira að segja tók ég upp kokkahúfuna í gær og eldaði! Hvað skyldi nú hafa verið í matinn?! Jú mikið rétt, kjúklingabringur og hrísgrjón! Mikið hugmyndaflug á þessum bæ...
Ég verð samt að gera játningu, ég er um það bil aumkunarverðasta 25 ára einhleypa manneskjan í öllum heiminum. Í gærkvöldi fór ég að sofa kl.19:30!! How sad is that??? En það var samt voða gott að vakna úthvíld klukkan 5:05 í morgun:o)
Svo er verið að reyna að draga mann á djammið í kvöld en ég barasta nenni því ekki. Ætla að vinna á morgun og vera dugleg að æfa, það er lappadagur á morgun og maður klúðrar því sko ekki með áfengisdrykkju! Huh!
Til hamingju Valsstelpur með sigurinn á Stjörnunni í gær, fattaði það þegar ég var komin upp í rúm að ég GLEYMDI leiknum:-/ Ég er ekki að gera góða hluti á stuðningsmannalista Vals. En ég reyni að komast á næsta leik sem er á morgun (fimmtudag) kl.19:15 í Ásgarði í Garðabæ. Allir að mæta, vonandi ég líka;o)
Jæja, þarf að drullast á æfingu. Vonandi gerði pistillinn minn stormandi lukku (ég efast reyndar ekkert um það) þar til næst, bless á meðan...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli