Hvað á 25 ára gamall einhleypingur sem er að fara að vinna daginn eftir og nennir ekki á djammið að gera?!
Það er ekkert spennandi í bíó, svo er það líka ógeð dýrt.
Ætla líka að taka daginn snemma á morgun og skella mér í brennslu á fastandi. Ætla að taka mér frí frá spinnig á morgun. Miðsvæðið myndi ekki þola mikið meira áreiti. Svona er að eiga ekki kærasta, mar dettur úr allri þjálfun!! hahaha
Ég held að mig skorti svefn. T.d fékk ég svefngalsa klukkan 12 í dag og var svo næstum því sofnuð um 13 leytið. Már finnst það heeeeldur senmmt fyrir svoleiðis. Ætla snemma að sofa í kvöld. Þá fæ ég svefngalsann kannski ekki fyrr en kl.14 á morgun. Miklar framfarir. Verð líka að vera fersk á morgun þegar ég mun flytjast búferlum upp í Lómasali, get ekki beðið:oD
Ég og Grumpster erum orðin sybbin. Ætlum að fara að gera okkur ready fyrir háttinn. Poppi biður að heilsa. Hann getur samt ekki vinkað af því að hann er meiddur í hægri öxlinni. Hann var e-ð að sýna sig fyrir kettinum sem var fyrir utan gluggann. Þóttist geta tekið meira en hann í bekknum en það gekk ekki betur en svo að hann meiddi sig í öxlinni. Læknirinn sagði að hann þyrfti að hvíla sig í 3 vikur. En við getum þá allavegna einbeitt okkur að neðri hlutanum, massa sporðinn bara enn betur. Anways, hann biður að heilsa án vinksins....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli