Enn og aftur föstudagur, ég skil ekki hvað verður um hina virku dagana!!!
En ég er orðin voða sybbin og ákvað bara aðeins að kasta kveðju á ykkur.
Ég lagði mig í bleyti áðan og það var endalaust næs. Ég hélt að það hefði bara verið svo gott í minningunni að skella sér í bað BUT NO þetta var æði. Fór reyndar í bað um daginn og það voru enga búbblur eða neitt og svo var ég að tala um það við Jóa að mér hefði leiðst svo í baði af því að ég var ekki með neitt svona oní. Hann stakk upp á að ég myndi kaupa mér vatnshelt egg (vitum reyndar ekki hvort það sé til solleis) en ég held ég láti mér bara nægja búbblurnar sem ég keypti í Fjarðarkaupum, sem er by the way orðin uppáhalds búðin mín í heiminum.
Svo er hópferð í bíó annað kvöld (við edrúpakkið söfnumst alltaf saman um helgar til að fyrirbyggja að við dettum í'ða!) ferðinni er heitið á Kill Bill 2, svona í beinu framhaldi af því að hafa horft á Kill Bill 1 í edrúpartýinu síðustu helgi. Og svo verður nammidagurinn að sjálfsögðu tekinn með trompi. Algjör snilld að það sé 50% afsláttur í Nammilandi á laugardögum. það verður að sjálfsögðu nýtt til hins ítrasta:oD
úff, er orðin alveg tóm. Hef vonandi e-ð skemmtilegt að segja á morgun. Stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli