laugardagur, maí 01, 2004

Mikið í húfi...

Já, nú er að duga eða drepast. Minn vaknaði kátur skáti kl.7:00 í morgun og skundaði af stað niðrí Sporthús til að hitta Jóa fyrir stund sannleikans! Mæling var málið. Yfirleitt verð ég Grumpster dauðans eftir mælingar en ég var svo spennt yfir að það væri nammidagur að mér var eiginlega slétt sama. Eða svona pííííííííiííííííiínu sama. KOm reyndar ekkert sérstaklega vel út en nú er sko komið veðmál í gang og ef ég stend mig vel þá gæti mín verið að fara frítt til útlanda:oD En ég skal segja ykkur betur frá því þegar það er orðið klárt. Vil ekki jinxa það og koma í veg fyrir að það verði að veruleika!!
En Krít er óskastaðurinn og Guð minn góður hvað ég hefði gott af því að fara í frí og komast í sólina (þrátt fyrir að Stjörnusól sé að standa sig með stakri prýði sem staðgengill þessa dagana! það var ekkert Gummi minn;o)) En ég hef eiginlega ekki tekið neitt sumarfrí síðan '99, ætli það sé ekki að verða tímabært.
En til að þið vitið um hvað veðmálið snýst þá er markmið mitt að komast niður í 65 kg. en í mælingunni í morgun þá var ég 70.4 kg. en ég held samt að ég sé aðeins þyngri af því að síðasta sólarhringinn er ég búinn að vera pissandi á 30 mín. fresti og er algjörlega vökvalaus. Sem er mjöööög pirrandi af því að því fylgir að fá endalausan sinadrátt:-/ Og allir þeir sem segja að það sé betri en enginn dráttur, þið hafið svoooo vitlaust fyrir ykkur og fáið frunsu ef þið haldið áfram að halda þessu fram!!
En þetta er allavegna markmiðið. Nú veit alþjóð þetta (eða allavegna þeir allir 3 sem lesa bloggið mitt) og þá er ekkert annað að gera en að standa sig.

Eftir mælinguna í morgun var skellt sér á þrekhjólið til að ná smá brennslu á fastandi. Þá kom soldið í sjónvarpinu sem er eiginlega bara MIKLU fyndnara en 70 mínútur! Og hvað var það? Jú, Icy Spicy a.k.a Leoncie með nýja lagið sitt, Wrestler. Oh my god hvað það var fyndið. Hún er snillingur konan, að það sé virkilega hægt að misskilja sig svona. Jæja, hún gerir allavegna lífið skemmtilegra...

Nú er bara einn kúnni eftir hjá mér í dag og ég er byrjuð að iða í skinninu eftir að komast í Nammiland! Og svo er nottla heljarinnar prógramm í kvöld, út að borða og bíó með öllu edrúgenginu. Jibbí, það verður ábyggilega gaman. Og svo má ekki gleyma hvað verður ábyggilega gaman á bakæfingu á eftir. Tala nú ekki um brjóstaæfinguna á morgun. ALLT að verða vitlaust:oD

Já, á meðan ég man. Ég kem ekki til með að vinna um helgar í sumar þannig að þeir sem vilja bjóða mér upp í bústað eða til útlanda eða e-ð þá verð ég laus á helgum. Bara svona just in case ef þið voruð að svekkja ykkur á að ég kæmist ekki með.

Well, gotta go. Þarf að fara að kroppatemja. Heyrumst síðar...


Engin ummæli: