Ég og Svava fengum loksins langþráðu pizzuna okkar og borðuðum hana yfir Bridget Jones´s diary. Algjör snilld þessi mynd. Svo var tekin smá lúr og þegar ég vaknaði þá var þynnkan eiginlega bara alveg farin. Er nú reyndar hálf úldin en maginn er ekki lengur í uppreisn. Vorum einmitt að enda við að golla í okkur ís og erum að horfa á Maid in Manhattan, vá hvað við erum miklar stelpur!
Það er samt á svona stundum sem ég byrja alltaf að íhuga að setja tappann í bokkuna! Var að fatta að ég var ekkert rosalega edrú í gær og það eru ansi margar gloppur í minninu:-/ Man samt að ég byrjaði á Thorvaldsen, kíkti yfir á Hressó. Stakk af þaðan á Pravda sem mér fannst e-ð súrt og stoppaði í ca. 3,34 mínútur. Og fór svo uppá Hverfis, as usual. Var að tala við eina sem sagði að vinkonur sínar hefðu lent í röðinni í klukkutíma en ég reyndar man ekki eftir neinni röð! Ég fór allavegna beint inn. Ég get svo svarið að það var engin röð, æi samt, varla hefur hún gufað upp! Vá hvað ég hef verið full! Nú verður ekki djammað fyrr en 12.júní þegar mín ástkæra systir útskrifast sem viðskiptafræðingur. Verð edrú alveg í 2 vikur! Rosa góð frammistaða;o)
Er hætt í bili, ætla að einbeita mér að því að horfa á Ralph Fiennes. Vildi bara deila með ykkur þeim gleðifréttum að ég væri orðin nokkuð heilsu. Efast ekki um þið hafið haft miklar áhyggjur af mér! ;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli