Akkuru er klukkunni ekki breytt hér eins og annars staðar? Það er ekkert sérstaklega auðvelt lengur að vakna kl.5 á morgnana! Sem er nottla vegna þess að það er orðið mjöööög erfitt að fara að sofa kl.9 á kvöldin. Mér finnst allavegna sniðugt að seinka klukkunni um klukkutíma á sumrin. Mér finnst þetta meira að segja mun mikilvægara málefni en fjölmiðlafrumvarpið, ætla að tala við Dabba Odd og athuga hvort hann geti ekki kippt þessu í liðinn fyrir mig. Efast ekki um að hann taki vel í það;o)
Svo er allt að gerast núna. Lísa vinkona mín sem býr útí Danmörku er að reyna að plata mig til að koma til sín. Sem er hið besta mál en við erum þá að spá í að ég fari í NÆSTU VIKU! En ef kúnnarnir mínir taka vel í að ég yfirgefi þá í 3-4 daga þá er ég að spá í að skella mér bara. Þ.e.a.s ef mamma leyfir mér að borga flugfarið með visakortinu sínu (hljóma ég núna eins og 25 ára einstaklingur sem er fluttur að heiman?!) En það yrði bara snilld, ég nebbla dýrka Köben:oD
Ætla að tékka á málinu, læt ykkur vita um leið og e-ð kemur í ljós. Stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli