þriðjudagur, maí 25, 2004

Ég gleymdi!

Ég trúi ekki að ég hafi allann tímann sem ég var úti, gleymt að segja ykkur að ég fékk ekkert gott veður! Allir búnir að öfunda mig geðveikt á að vera að fara í sólina en svo fékk ég enga sól:-/ Það var geðveikt veður daginn áður en ég kom og svo daginn sem ég fór. Það var víst líka geðveikt veður hérna heima daginn áður en ég kom og svo í gærmorgun áður en ég lenti! Ég ætla að taka þessu persónulega!!

Svo hringdi litli Liverpool United aðdáandinn í mig í gærkvöldi til að athuga hvað ég hefði keypt handa honum. Ég spurði hvað ég hefði átt að kaupa og þá sagði hann action kall (og þar sem ég fór eiginlega ekkert að versla þá keypti ég heldur ekkert handa púkunum en ég held þeir fatti það ekki þó þeir fái e-ð úr Hagkaup.) Ég sagðist þá hafa keypt action kall en þá sagði hann að hann ætti action kall sem gæti flogið þannig að hann vantaði eiginlega ekkert action kall! Þá sagði ég að hann yrði bara að bíða og sjá hvað ég hefði keypt, nú er bara að leggja kvarnirnar í bleyti og finna e-ð sniðugt. Svo spurði hann hvað hann ætti að kaupa handa mér í Ameríku, hann er að fara þangað í ágúst (fyrir þá sem ekki vita það þá er 4 ára) Ég bað hann bara um að kaupa e-ð fallegt handa mér og þá sagði hann: "Ok, ég skal kaupa handa þér Barbie!"
Yes! Ég hoppaði hæð mína af gleði;oD
Hann átti samt mjög erfitt með að meðtaka það að ég væri hætt að leika með Barbie...

þá er það komið til skila, er farin á æfignu...

Engin ummæli: