Núna er minn andvaka sem er eitt mesta hell í heimi! Skelli samt skuldinni á það að hafa verið veik í dag og sofið til hádegis! Það verður eflaust líf og fjör þegar klukkan hringir kl.5:00 í fyrramálið. Ætla sko aldrei aftur að verða veik, það er hundleiðinlegt! Reyndar dró Gummi mig upp á rassgatinu rétt eftir hádegi og við fórum á stælinn (hann vill nottla ekki sjá hlunkinn sinn svelta!) og þar fékk ég eitt bestasta kjúklingasalat sem ég hef smakkað. Algjör snilld, fékk líka svo mikið að ég tók restina með mér heim og borðaði í kvöldmatnum. Þannig að fyrsti dagur í megrun gekk afskaplega vel (þá tel ég sko fríhafnarnammið ekki með!)
Er strax farin að spá í hvort ég eigi að djamma um helgina. Á nottla líka fríhafnaráfengið! :oD Það var tilboð í flugvélinni, 1/2 líter af vodka á 300 kall! Keypti eitt stk. og svo 1 líter af Amarula, uppáhaldsvíninu mínu í fríhöfninni. Sem sagt, til nóg af fljótandi næringu og spurning hvort það eitt og sér sé ekki tilefni til að djamma?! ;o) Svo á ég og Sveifin mín líka eftir að halda innflutningspartý og erum að reyna að finna hentuga dagsetningu fyrir það. Úff, ég á eftir að enda í meðferð með þessu áframhaldi. Maður fer til Köben og kemur heim stórskemmdur! Það er kannski ágætt að ég fari þangað og verði bara þar, held að Ísland sé ekki tilbúið að taka alltaf við mér í tjómu tjóni.
Ætla reyndar að byrja á því að finna mér gym og byrja strax að æfa af krafti. Reyna að koma mér bara í þann gírinn, ef ég kynni að fara hinn gullna meðalveg þá myndi ég geta gert hvoru tveggja, þ.e æft samviskusamlega og djammað í hófi, en þar sem ég hef alltaf verið annaðhvort í ökkla eða eyra þá ætla ég ekki einu sinni að reyna að telja mér trú um það breytist e-ð þó ég skipti um umhverfi!
jæja, ætla að reyna að fara að lúlla. Ég var að spá í að telja kindur en þá verð ég svo svekkt yfir tattúinu sem ég fékk ekki, en reyndar var það geit þannig að ég get huggað mig við það. Kannski ég telji bara tattú, eða ekki. Þá fer ég bara að hugsa um öll ljótu tattúin sem eru til í heiminum og það gerir mig sorgmædda. Ég veit ekki hvað ég get talið án þess að það framkalli meira hux. Ég veit, ég ætla að telja augun á Poppa! Og þar sem hann er bara með eitt auga þá verð ég rosalega fljót að sofna! Það er sko ekki að ástæðulausu að miðnafnið mitt er Einstein! Held reyndar að hann hafi verið hálf geðveikur en hann fann upp ljósaperuna þannig að hann var líka mjög snjall. Og ég er einmitt alltaf að reyna að segja þeim sem segja að ég sé geðveik að það sé þunn lína á milli snilligáfu og geðveiki! Ég er kannski rambandi á línunni en eins og staðan er núna þá er ég geðveikur snillingur:oD
Góða nótt, ætla að hætta áður en svefngalsinn leysir húmorinn mikla úr læðingi. Þá er voðinn vís og ég verð bloggandi í alla nótt! anyways, Zzzzzzzzzz
Engin ummæli:
Skrifa ummæli