sunnudagur, maí 02, 2004

Þar skall hurð nærri hælum...

Dagurinn í gær var ansi vel heppnaður. Ég borðaði reyndar aaaaaaðeins of mikið af nammi og var eins og haugur á bakæfingunni. Ekki gott move. En svo var skundað á Pizza Hut, sem var reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir. Í fyrsta lagi þurftum við að bíða í tæpan klukkutíma eftir matnum (og það var ekki mikið að gera *pirr pirr*) svo þegar maturinn loksins kom þá fékk Hafrún vitlausa pizzu og brauðstangirnar sem við ætluðum að fá í forrétt urðu að eftirrétt. En við erum öll svo skapgóð að þetta slapp. Reyndar sá maður votta fyrir örlítið auknum púls hjá Hafrúnu þegar afgreiðslustelpan kom og tók pizzuna hennar án þess að spyrja hvort hún vildi bíða. En hún (Hafrún) tók sjálfa sig á sálfræðinni og náði að róa sig niður. (fyrir þá sem vita það ekki þá er hún í cand pshych námi (veit ekkert hvort þetta er rétt skrifað!) En þetta er allavegna framhaldsnám í sálfr.)
Fórum svo á Kill Bill 2 sem mér fannst eiginlega betri en sú fyrri. En ég og Orri vorum sammála um það að það hefði mátt jafna þetta aðeins betur út milli mynda. Maður var orðinn soldið þreyttur á blóðbaðinu í fyrri myndinni og svo var seinni myndin orðin pínu langdregin í lokin. Mikið um tilfinningar og svona. En hin fínasta afþreying.

Eftir bíóið var minn orðinn sybbinn (kemur á óvart!) og var í sakleysi mínu á leiðinni heim í háttinn þegar Orri, old buddy old pal, hringir í mig og spyr hvort ég vilji koma á rúntinn í fína Subarunum sem hann er með í láni. Og ég var sko alveg til í að rúnta á þessum bíl! Tókum 2 laugara og ákvaðum svo að setjast aðeins inn á Hverfis og kíkja á pakkið þar. Það var einmitt þar sem hurðin skall nærri hælunum! Orri fékk sér einn kaldann en ég var bara spök á kantinum með diet kók. Svo fór aðeins að líða á og litli púkinn byrjaði að koma inn hugmyndum hjá manni og ég fékk mér einn breezer, bara svona fyrir stemmarann. En við ákváðum að hætta við að falla í djammsvaðið og komum okkur bara heim med de samme. Sjúkkett!! Segi ég og skrifa. Ég var líka rosalega fegin þegar ég vaknaði "fersk" (er yfirleitt ekkert sérstaklega sæt á morgnana, en var í skárra falli í morgun) kl.8 og skellti mér í morgunbrennsluna mína. Kom svo heim og er búin að vera ofvirk í tiltektinni. Er að spá í að fá mér smá orkulúr fyrir seinni æfinguna. Tökum brjóst í dag, maður verður víst að standa sig í bekknum! ;o)

Nóg í bili, þar til næst...

Engin ummæli: