miðvikudagur, maí 05, 2004

krumpaður bíll...

Önnur reynslusaga fyrst að ég er byrjuð.

Einn kúnninn minn lenti í því að hún var á bílastæði um daginn og annar bíll bakkaði á hana. Hún á 4 ára dóttir sem eðlilega brá soldið, svo spurði hún: "Mamma, krumpaði hún bílinn?!
Þegar hún kom svo heim og hitt i pabba sinn þá hljóp hún til hans í öngum sínum og sagði honum að það hefði verið kona sem krumpaði bílinn þeirra!!! Litlir krakkar eru snillingar...

By the way, talandi um dúllur. Ég vil óska Brynjari og Sollu til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn hana Jasmín, sem er 9 vikna tjiváva hundur (man sko ekki hvernig það er skrifað en þið fattið þetta svona;o)) Hún er ÆÐI!

Og að sjálfsögðu, til hamingju Ása (og Halldór of course) með litlu snúlluna. Ég kem og kíki á ykkur bráðum.

Þá er hamingjuóskahorninu lokið í dag.
Bless í bili.

Engin ummæli: