þriðjudagur, maí 18, 2004

Það var svo bara ekkert erfitt að vakna!

Vaknaði alveg sprellhress kl.5:00. Var reyndar búin að vakna kl.4:00 við konuna sem þrammar alltaf framhjá á pinnahælunum. Magnaður andskoti. Hún er sko flugfreyja, sem útskýrir brenglaðan vöknunartíma og pinnahælana! Er samt að spá í að fara að rabba við hana og athuga hvort hún geti ekki beðið með að setja pinnana undir, allavegna þar til hún er komin framhjá glugganum mínum...

Þjálfaði fyrst 2 kúnna og misnotaði svo aðstöðu mínu og tróð mér inn í æfingatímann hennar Evu minnar og massaði lappir með henni. Finnst samt eins og lærin á mér séu að verða heeeeeeldur mjó! Það sökkar feitt:-/ Það er samt kannski fyrirgefanlegt ef rassinn fetar í fótspor læranna og minnkar kannski aðeins líka! En þá er ég samt kannski orðin soldið súrrealísk í vextinum þar sem hendurnar á mér eru sko ekki að minnka! Jæja, ég finn e-ð útúr þessu.

En ég er að spá í að svipta Evu titilinum um uppáhalds nemandann! Hún sagði að gríski söngvarinn væri holgóma!! Hann er það sko bara ekki neitt! Hún hefði alveg eins getað stungið blautum rýting í andlitið á mér! Mér varð allavegna mjööööög illt í tilfinningunum mínum. Finnst þetta rosalega ljótt af henni að segja svona...

Já, og svo vantar mig nafn á skjaldbökuna mína sem er mesta dúlla ever. Hann er með slaufu! Ég held að hann og poppi eigi eftir að verða góðir vinir. En mér þætti vænt um ef þið kæmuð með uppástungur um nafn á hann. Hann er líka grænn eins og Hlunkurinn (nei ekki ég, bíllinn minn!) En ég er alveg clueless um hvað ég get skýrt hann.

Fann ekkert tattú sem mig langar í. Var líka að spá í hvort ég ætti að fá mér á hálsinn, rétt neðan/aftan við eyrað. Það er samt kannski e-ð sem maður sæi frekar eftir. En samt kannski ekki ef merkingin er e-ð sem skiptir mann máli. Þetta er samt soldið áberandi staður. Æ, ég ætla bara að halda áfram að sörfa þar til ég finn það eina rétta.

Ég nennti ekki að horfa á allann survivor þáttinn þannig að ég veit ekkert hver vann. Enda er mér líka eiginlega alveg slétt sama. Er samt búin að ákveða að ég hélt með Aliciu, shit hvað konan er flott! Þannig að nú er ég í sárum yfir að hún vann ekki. Það verður samt gaman að sjá hvort Amber og Rob verði happy ever after. Mér finnst hann samt bara ekki neitt sætur, en hún er það aftur á móti. Ætli hungur og mikill hiti hafi sömu áhrif á fólk á áfengi? Að allt í einu verður einhver sem er kannski ekkert sérstaklega heppinn í framan að algjöru augnayndi. Nema að áhrifin af hungrinu og sólinni endast þá töluvert lengur en af áfenginu. Það er víst rosa heitt útí Köben, ætli ég komi heim með ljótann kærasta?! En líkurnar á að ég svelti eru hins vegar stjarnfræðilega litlar þar sem líkaminn minn lýsir yfir hungursneyð á 3 tíma fresti(þ.e.a.s ef ég þrauka í 3 tíma milli máltíða!) þannig að ég mun mjööööög líklega koma einhleyp aftur tilbaka. Sjúkk mar..!

Svo er Annapanna að klikka á að koma að æfa með mér úti, hún ætlar BARA að teyga ölið! Hún missir þá bara af því að læra á því að horfa á okkur massana æfa (þ.e mig, Lísu (sem er fyrrv. ísl.meistari í vaxtarrækt), danmerkurmeistara og norðurlandameistara í vax.rækt, sem æfa í sama gymi og hún) Veit reyndar ekki hvernig mér datt í hug að flokka mig í þennann hóp en mar má nú alveg lifa í voninni. Helv... mjóu lærin! Eða er það kannski bara enn ein sjálfsblekkingin?! ;o)

Er hætt að rausa, þarf að fara að láta fixa neglurnar. Veit ekki hvort ég næ að skrifa meira áður en ég fer út. Reyni allavegna að lauma inn einu blessi.
Bæ á meðan...

Engin ummæli: