sunnudagur, maí 09, 2004

Djö... viðbjóður!!!!!!!!!!!!

Er búin að vera að fylgjast með fréttum frá Írak og það sem er í brennidepli núna er hvernig farið er með stríðsfangana. Ég fæ alltaf gubbuna í hálsinn og tárin í augun þegar ég sé myndirnar af þessu! Ég er búin að vera mótfallinn þessu stríði frá upphafi og þetta er bara til að bæta enn á fyrirlitningu mína á USA, og þá sérstaklega á Bush. Það ætti allavegna ekki að koma neinum á óvart þó að hryðjuverkaárásir á Bandaríkjamenn muni aukast. Ég ætla ekki að segja að þeir eigi það skilið, en ég verð sko ekki hissa.
Úff þetta er bara hreinn og klár viðbjóður. Mér finnst reyndar ekkert skrýtið að hermenn snappi og geri hluti sem þeir myndu almennt ekki gera. Það er ekki hægt að ímynda sér aðstæðurnar sem þeir eru sendir í (er ekki að réttlæta að þeir fari illa með og niðurlægji fangana!) Stríð eru bara svo heimskuleg og ég held að Bush ætti að drulla sér sjálfur á vettvang. Hann var meira að segja svo mikill heigull að hann kom sér undan því að fara í Víetnamstríðið á sínum tíma. AAaaargh, ég er svo reið að ég er að spriiiiiiiiinga!!!!!

Ætla að drulla mér í gufu og reyna að róa mig aðeins niður, bless á meðan.

Engin ummæli: