Ég er ógó þunn núna:-/ Ég verð eiginlega aldrei þunn, þetta sökkar feitt! Svo hélt ég að ég hefði pantað pizzu í nótt en núna held að ég hafi ekki gert það. En Svava er búin að panta núna þannig að þynnkumaturinn er á leiðinni:oD Fékk mér peru í morgunmat og svo dvergepli áðan, það er bara ekki alveg að gera sig í þynnkunni! Ældi því svo líka hvort sem er þannig að nú er nóg pláss fyrir pizzuna. Komst líka að því að ég borðaði lakkrís í nótt/morgun, mjög ekki fögur sjón. Sérstaklega ekki þar sem hann blandaðist einstaklega illa saman með Select pulsunni sem Orri NEYDDI oní mig! En þið viljið kannski ekkert fá nánari details um æluna mína! hehe
Hef ekkert meira að segja, er bara ca. um það bil að DEYJA núna! Ætla að leggjast undir sæng þar til pizzan mín kemur. Læt ykkur vita þegar minn er orðinn hressur aftur. Úff, ég get svo svarið að ég held ég sé að fara að pjúka meira! Gotta go.......
Engin ummæli:
Skrifa ummæli