sunnudagur, maí 16, 2004

Júróvisjón o.fl.

Gærkvöldið endaði með tralli í bænum. Var eiginlega búin að ákveða að vera bara spök í gærkvöldi en eftir að hafa setið með Hafrúnu að horfa á Eurovision og var byrjuð að iða útaf litla djammnjálgnum í rassinum á mér þá ákvað ég bara að go for it. Greyið Hafrún þurfti samt að vera edrú þar sem hún átti að mæta í flug rétt fyrir 8 í morgun til að spila landsleik við Dani í EYJUM! Skil það nú ekki alveg. Að fara til lengst útí hafsauga til að spila landsleik. *Pjuff*
Við urðum samt hálf gúffalegar á svipinn þegar Gísli Marteinn talaði um að íslenskar konur hefði ekki látið blekkjast af tjokkónum frá Grikklandi þar sem við stöllur misstum ansi mikið vatn yfir honum, var að íhuga að setja þvagleggin á samband á tímabili! Við erum greinilega svona ginkeyptar! En mér fannst hann allavegna BARA sætur *slef slef* Samt kaus ég hann reyndar ekki. Humm, kannski létum við ekki blekkjast af lúkkinu eftir allt saman. En ef þið hittið hann þá megiði alveg láta hann hafa númerið mitt:o)
Jónsi stóð sig nokkuð vel. Miðað við hvað lagið er leiðinlegt þá bjargaði hann því bjargað varð og hann sýndi að hann getur sko alveg sungið. EN akkuru í anskotanum var hann í þessum jakka?? Ég hefði viljað sjá tight síðaerma (hlýrabolur hefði ekki gert góða hluti!) bol til að sýna músklana á drengnum. Og hvað var með "danssporin"? Eins gott að þau fóru með danshöfund með sér út!!! Þetta var bara e-ð skrýtið skrölt á sviðinu. En hvað veit ég svo sem? Eina danssporið sem ég kann er ormurinn. Sem vekur mismikla lukku, fer allt eftir stað og stund...

Tók svo stefnuna heim til Jóa en hópurinn splittaðist og ég og fitness Svava fórum á Hressó. Svo stakk nottla litli njálgurinn af á Hverfis. Entist alveg sögulega lengi inn á Hverfis eða alveg til lokunar. Yfirleitt er ég búin að þræða allnokkra staði áður en heim er haldið. En það var fullt af fólki sem mar þekkti og það var ótrúlega gaman. Varð ekki einu sinni neitt blindfull og man allt:oD Allavegna þar til annað kemur í ljós...

Svo er líka ógisslega gaman að Anna Rut vinkona mín verður í Köben á sama tíma og ég og við ætlum að kíkja saman í e-ð massagymið (þú klikkar ekki Anna mín!) og svo verður nottla aðeins teygaður danski bjórinn. Bara pínu samt *hóst hóst* ;o)

Svo vil ég biðja alla um að þegja í eina mínútu og minnast flugunnar sem ég keyrði á áðan. Þetta var ein stærsta býfluga sem ég hef séð. þetta var eiginlega svona býfugl. En ég er að reyna að koma mér undan samviskubiti með að sannfæra mig um að ÞAÐ VAR HÚN SEM KLESSTI Á MIG! Svei mér þá ef það kom ekki smá dæld á bílinn minn. En allavegna mínútuþögn í minningu hennar svo að við fáum ekki frunsu eða förum til helvítis.

Talandi um bílinn minn, sem er grænn Yaris. Það voru voða miklar vangaveltur um nafn á gripinn og Hulk var uppá borðinu í smá tíma þar sem hann er grænn en svarið var augljóst allann tímann. Auðvitað heitir bílinn minn HLUNKURINN! Það er bara algjörlega viðeigandi, svona lítil kúla með 1000 vél sem fretast einhvern veginn áfram og svo er hann alveg eins og mamma sín, allur út í rispum. Við erum svo miklir gözzlarar og brussugangurinn allsráðandi. Eða, ætli ég þurfi samt ekki að taka á mig sökina á rispunum hans Hlunka, keyrandi utan í og bakkandi á steina (eða eiginlega hnullunga, þeir sem hafa farið á bílastæðið í Sporthúsinu vita hvað ég er að meina) eins og ekkert sé sjálfsagðara:-/ Annars er ég farin að vorkenna þessum Steina meira en Hlunka, en hann getur bara sjálfum sér um kennt að vera alltaf fyrir..!

Úff, fyndnin farin að hlaupa með mig í gönur. Þá er kominn tími til að lufsast á æfingu. Ég og Svava massi (þeir sem vita ekki muninn á Svövum þá er fitness Svava vinkona mín sem ég var að hjálpa fyrir síðasta Galxay-mót en Svava massi er Svavan sem ég bý með)fórum eldsnemma (um 12-leytið) á fætur og fórum á stælinn í einn sveittann og nú er að fara að bæta fyrir syndir sínar. Veit samt ekki hversu góð æfingin verður en ég fæ allavegna prik fyrir viðleitni og vonandi smá útrás fyrir ofhuxið...

Engin ummæli: