Ég og Gummi brunuðum beint á Nings af flugvellinum. Mig var alveg farið að þyrsta í smá hollustu! Fór svo heim skellti í þvottavélina og Gummi varð nú hálf skrýtinn á svipinn þegar ég tjáði honum að ég hlakkaði svo til að fara heim að setja í vélina. Mér finnst það nebblega svo góð tilfinning að vita að fötin mín séu að verða hrein! Vona að þetta hljómi ekki of sick!
Það er gisku-keppni í fullum gagni. Margir að giska á hvar líkamsskrautin mín eru. En það fær enginn að vita það nema að sjá það en ég ætla að leysa frá skjóðunni hér á blogginu á föstudag. En endilega verið dugleg að koma með fleira ágiskanir þangað til (og þeir sem vita þegja!!)
Staðan er sem sagt þannig: Ég kom til baka með 1 nýtt tattú og 2 piercings. Ágiskanir: pirceing í tungu, nafla og svo hafa ansi margir hafa giskað á pjölluna (don´t ask me why!). Tattú á mjaðmabein eða ökkla. Ég var samt búin að taka fram að það væri hvorki á mjaðmabeininu né hálsinum. Þannig að keep on guessing;o)
Kíkti á æfingu eftir að hafa sett í þvottavélina, vá hvað það var gott!! Það var samt pínu átak að koma sér af stað. En samt aldrei spurning um að fara ekki sko! Tók vel á því og fór svo í gufubað. Hoppaði aðeins á vigtina sem var ekkert sérstaklega gott move þar sem mar er aaaaaðeins búin að mýkjast í ferðinni (það er samt mjög jákvætt að það sé til meira af mér;o) Vona ég allavegna..!) en vigtin var samt örlítið skárri en ég átt von á en nú er bara að fara að rífa af sér kílóin. Þ.e.a.s eftir að ég er búin með duty free nammið!! hehe, nei djók;o)
Er farin heim að lúlla, heyrumst á morgun...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli