Þá er fyrsta fríhelgin runnin upp. Það eru ár og aldir síðan ég hef átt frí bæði laugardag og sunnudag. Nema þegar ég skrepp í aðgerðir en ég ákvað að telja það ekki með sem frí.
En þetta er búið að vera endalaust nice so far. Eftir vinnu í gær þá tókum ég og Jói killer bakæfingu og ég bætti metið mitt í upphífingum. Tók 15 stykki (reyndar með sveiflu en þær væru löglegar í Galaxy!! ;o)) Ég var voða stolt þegar ég sleppti takinu og sagði voða kokhraust:" Ég hef nú ekki séð margar stelpur geta gert svona margar upphífingar!" Þá sagði Jói:" Bjarney mín, ég hef ekki einu sinni séð mjög marga stráka hérna í Sporthúsinu taka svona margar!" Þannig að ég smælaði allann hringinn það sem eftir var æfingar:oD
Þeir sem þekkja mig vita að ég er ALLTAF með harðsperrur einhvers staðar en núna er ég eiginlega bara með sperrur sem gætu talist íþróttameiðsli!! En þessar harðsperrur eru sko meira en velkomnar fyrst að met eru farin að falla. En Orri er búinn að hóta því að slá mér við (hans met er sko 15 líka, en svo ég geri ekki lítið úr honum þá er hann ca. 25 kg. þyngri en ég þannig að hann þarf að hífa upp töluvert meiri þyngd) En við æfingaþríeykið erum að rokka spikfeitt þessa dagana, og þetta er 4 edrúhelgin okkar í röð. Það er líka nýtt met :o)
Og þeir sem hafa áhuga á að vita hvernig heilsuáskorunin gengur þá var vigtun í morgun og tæpt kíló farið hjá mér og 1,6 kg. hjá Jóa frá því fyrir viku (Orri, farðu að drullast í mælingu svo að ég geti upplýst statusinn á þér!!)
Eftir æfingu fórum ég, Jói og fitness Svava í Árbæjarlaugina og þar var flatmagað í pottinum. Klukkan var um 21:30 en sólin var ennþá á lofti. Sumarið liggur í loftinu, ótrúlegt hvað það gerir mikið fyrir sálartetrið að fá sólskin. Svo var strikið sett heim í Lómó og upp í rúm. Sumir hafa lýst yfir áhyggjum af mér vegna óheilbrigðs lífernis, þ.e að það sé mjög óheilbrigt fyrir 25 ára manneskju að vera alltaf farin að sofa um 9-leytið á kvöldin. En þar sem ég vakna alltaf klukkan 5:15 á morgnana þá á ég ekkert margra kost völ ef ég ætla að meika 12-14 tíma vinnudag (ætli það sé ekki óheilbrigðasti parturinn í þessu, að vinna svona mikið. En ef ég ætla að kaupa mér íbúð og klára skólann á næstu 5 árum þá finnst mér þetta alveg þess virði. Svo finnst mér líka bara alveg ótrúlega gaman í vinnunni minni:oD)
Ég og Svava tókum svo daginn snemma í morgun. Byrjuðum á að hitta Jóa í mælingu og ég er að spriiiiiiiinga úr stolti af henni Svövu minni (nú er ég að tala um Svövu massa sem ég bý með, hin Svava er fitness Svava, vona að þið fattið muninn;o)) Anyways, hún Svava mín er búin að missa fullt af kílóum og senimetrum en ég veit ekki hvort hún vilji að ég upplýsi hversu mikið af hvoru þannig að ég læt henni það eftir að skrifa um það sjálf) En þrátt fyrir góða útkomu í mælingunum þá þýðir ekkert að slaka neitt á og við tókum klukkutíma brennslu. (*klapp á öxlina*) Svo erum við búnar að stíla inná að seinni æfingin í dag verður á sama tíma og Valsstelpurnar spila við ÍBV þannig að við getum horft á leikinn á meðan við mjókkum:oD
Kvöldið verður svo ábyggilea rólegt og ef ég þekki mig rétt þá mun ég fara snemma að sofa til að geta farið í ræktina snemma í fyrramálið. Svo erum ég og Joey að fara í nudd á Nordica á morgun en hún fitness Svava var svo yndisleg að gefa okkur gjafakort í nudd eftir að við hjálpuðum henni fyrir fitnessmótið (þar sem hú BTW endaði í 2.sæti;o)) Og eins og sést á blogginu hennar þá vorum við mjööööög nánar fyrir það mót! Hehe Ég sem sagt var að bera á hana keppnislit og þá verðum maður að passa að setja ALLSSTAÐAR! Eða svona nánast. Þetta var samt mjög fyndið scene þegar ég var að setja á hana lit inná kvennaklósti í Smáralindinni þar sem það var engin búningsaðstaða fyrir keppendur. Litlu krakkarnir sem komu inn voru alveg forviða á hvað væri í gangi. Eflaust var fullorðna fólkið líka mjög hissa en það sagði allavegna ekki neitt. Glotti bara útí annað. Skiljanlega..!
Þetta er komið nóg í bili, gæti samt alveg skrifað meira sko. Þykir bara vænt um flesta sem lesa bloggið mitt og vil þar af leiðandi ekki drepa ykkur úr leiðindum.
Þar til næst, stay tuned....
P.s núna eru nokkrir farnir að taka upp á því að kalla mig Bíbí (þar sem skammstöfunin mín er BB) það sem mig langar að forvitnast um kæru hlustendur er: Er almenn sátt um þetta gælunafn eða á ég að byrja að ganga í skrokk á þeim sem kalla mig þessu nafni? Er ég Bíbí-leg?
Endilega segið mér ykkar álit. Ef nafnið kemur illa út úr þessarri skoðanakönnun þá munu SUMIR (Jói, Orri og Svava, takið þetta til ykkar!) fá frunsu í hvert skipti sem ég verð kölluð þetta Ef nafnið kemur vel út þá sleppi ég því að ganga í skrokk á ykkur (af einskærri góðmennsku!). Þetta verður spennandi;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli