mánudagur, maí 17, 2004

Þar kom að því...

Loksins er ég eiginlega alveg búin að ákveða staðsetningu fyrir þriðja og síðasta tattúið mitt. Hef samt aðeins verið að sörfa á netinu og skoða húðflúr og það er alveg magnað hversu mikið er til af ljótum flúrum! En mér finnst sko mín ekki ljót, annars væri ég væntanlega ekki með þau þannig að fólkið með ljótu tattúin finnst ábyggilega sín líka flott. Ég vona það allavegna þeirra vegna! En ég ætla að fá mér e-ð frekar lítið og flott og þýðir eitthvað. Og það verður á maganum ca. við mjaðmabeinið. Ef þið viljið viðra skoðanir ykkar þá bendi ég á kommenta dálkinn, þigg allar hugmyndir;o) En það er bannað að vera leiðinlegur við mig! Er líka búin að hugsa að ef ég skyldi nú kannski einhvern tímann verða ólétt hvort það teygist ekki á því en ég ætla að fá mér á stað sem tognar ekki mikið.

Ég er líka búin að komast að því að ég verð að byrja að horfa á sjónvarp! Ég er búin að vera algjörlega óviðræðuhæf í dag af því að ég ætlaði EKKI að horfa á lokaþáttinn í Survivor! Mér finnst bara ekkert gaman að horfa á raunveruleikaþætti. Finnst þeir bara pínlegir og þeir snúast bara um niðurlægingu og svik og pretti. En ég er nú samt að horfa núna með öðru auganu á lokaþáttinn!!! Og ég sé það líka að ég er ekkert búin að missa af neinu, komst inn í þetta allt saman í þessum eina þætti. Og ég skil ekki af hverju allir voru svona stupid að treysta Rob sem hefur aldrei staðið við neitt sem hann segir. Og ef ég man rétt þá laug hann sig í gegnum seríuna sem hann tók þátt í síðast. Þetta veit ég allt bara af því að heyra fólk tala saman og að horfa á lokaþáttinn. Hvað kennir þetta ykkur? Þessir sjónvarpsþættir eru einfaldlega waste of time og tímanum er betur varið í svefn! Allavegna þegar mar þarf að vakna kl.5. Og as we speak þá ætti ég að vera búin að drulla mér í lúllinn en það er bara svo bjart úti að líkaminn er ekkert að fatta að verða þreyttur. Hann mun samt alveg fatta það þegar ég á að vakna eftir rúma 6 klukkutíma!

Well, ætla að skoða nokkur fleiri tattú áður en ég lufsast upp í rúm.
Hasta manjana...

Engin ummæli: