Ég var að huxa (kemur á óvart!) að mér finnst heimurinn minn bestasti heimurinn. Ástæður:
#1 ÉG bý til reglurnar! Ég ræð t.d hvað er tekið með og hvað ekki. T.d er djamm á föstudegi ekki tekið með ef það fer fram utan landsteinana, ef maður borðar nammi sem er annaðhvort keypt í útlöndum eða DUTY FREE þá er alltílæi að borða það burt séð frá því hvort það sé nammidagur eða ekki o.s.frv.
#2 Ég get skipt um skoðun eins og oft ég vil og samt er mín skoðun ALLTAF rétt skoðun.
#3 Það eru engir hobbitar í mínum heimi. Nema Jói, en það er ekki tekið með af því hann er hollenskur hobbiti.
#4 Í mínum heimi eru engir raunveruleikaþættir sem mér þykir afskaplega sorglegt fyrirbæri, og þess vegna var dagurinn minn ekki ónýtur þó að Rupert hafið verið rekinn úr Survivor eða LaToya úr Idolinu eða að Andrew sé fíbbl sem kyssir allar stelpurnar í The bacehlor. (Sko, ég þarf ekki einu sinni að fylgjast með þessum þáttum. Innbyrði allann sorann úr öllum hinum heimunum sem eru ekki mínir heimar. En maður verður víst að mingla við hina heimana stundum en ég ætla ekki að hleypa þessu inn í minn heim *jakk*)
#5 Í mínum heimi heitir forsætisráðherrann PopEye og er eineygður gullfiskur og þar sem ég forsetinn í mínum heimi þá er aldrei rifrildi milli okkar af því að við erum alltaf bæði á mínu bandi. Veit samt ekki hvort það sé orðið tímabært að ráða fleiri í stjórnina. Held reyndar að það myndi ekki virka, ekki nema allir séu tilbúnir að lúta mínum vilja...
#6 Í mínum heimi er ekkert til sem heitir ADIDAS! Í mínum heimi leyfi ég bara Nike og Puma en reyndar eru svona eitt og eitt inn á milli sem má fljóta með t.d Hummel en það má þá ekki vera ríkjandi í klæðaburðinum. Reebok og Asics má líka einstöku sinnum.
Svo eru fullt fleiri ástæður, nenni bara ekki að telja upp fleiri.
Vil bara segja í lokin að mér finnst allir bloggaravinir mínir ekki vera að standa sig og mér finnst bara gaman að lesa eigið blogg af því að ég er sú eina sem er alltaf að skrifa nýtt. Koma svo, hysja upp um sig G-strenginn og veita mér smá samkeppni;o)
Humm, talandi um g-streng. Hvort ætli það sé verra að vera brókaður ef mar er í G-streng eða venjulegum naríum? Reyndar keypti ég mér naríur úti sem eru I-strengur, algjör snilld. Held samt að ef ég yrði brókuð í þeim þá myndi strengurinn bara slitna. Ég er samt í vondum málum ef ég er brókuð, það er ekkert grín að þurfa að tosa naríur úr rassinum mínum, hann nær ca.2 metra útí loftið. Það er hér með bannað að bróka í mínum heimi, það er regla #8
Þannig að þeir sem vilja búa í mínum heimi eru velkomnir, það eina sem þið þurfið að tileinka ykkur er að mín skoðun verður hér með ykkar skoðun (en það er að sjálfsögðu rétt skoðun) og þið lútið mínum vilja. Þá er ég ekki að tala um e-ð BDSM dæmi! Meira bara svona ef mig vantar axla-eða tásunudd eða e-ð.
Farin í háttin, getið sent mér umsóknir um að að komast að í mínum heimi annaðhvort á meili eða bara í commentaboxið.
Góða nótt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli