sunnudagur, maí 16, 2004

Ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn! :oD

Jamm, bara 3 dagar þar til minn fer útfyrir landsteinana. Heyrði aðeins í Lísu í dag og þá var 20 stiga hiti og glampandi sól. Djö... leiðindi að vera að fara út í þetta veður! Vona bara að það haldist þar til sóldýrkandi numero uno mætir á svæðið.

Æfingin mín áðan var ekkert sérstök en samt ábyggilega skárri en engin æfing. Tók svo smá sveig á leiðinni heim og rúllaði við í Árbæjarlauginni og fór aðeins í heita pottinn. Mjög notalegt. Jafn sorglegt og það hljómar þá er ég núna farin að undirbúa að koma mér í rúmið. Ég er svo mikill einhleyypingur, t.d áðan þá borðaði ég upphitað 1944 lasagne! Það gerist ekki öllu piparsveinalegra. En mjög þægilegt, er sko alls ekki að kvarta. Grumpið frá síðustu viku er líka eiginlega alveg farið og Jói ætlar að taka það til baka að það sé ekki hægt að æfa með mér! (er það ekki Jóhann?!)

Nú get ég ekki meir, er orðin rosa sybbin. Góða nótt...

Engin ummæli: