Minn ákvað bara að láta verða af því! Á one way ticket til Köbenhavn 16.ágúst!!! Bý hjá Lísu fyrst um sinn en svo kemur Svava vonandi út í byrjun september og við ætlum að reyna að leigja 3 saman helst nálægt miðbænum. Nú er bara að fara á fullt að finna sér vinnu.
Ef e-r vill fá Yaris, engin útborgun, bara yfirtaka á láni þá endilega hafið samband. 2000 árg., keyrður um 60.000 km. Snilldarbílar. Eyða nánast engu. Hvað er ég að babbla, ég telst hlutdræg! En, þetta eru fín kjör og ég er allavegna búin að vera endalaust ánægð með hann.
Við erum orðnar nokkuð sannfærðar um að það sé draugagangur í Lómó! Álfabikarinn minn hvarf bara eins og dögg fyrir sólu! Hann lá á gólfinu við hliðina á töskunni minni í gærkvöldi og svo í morgun þá leitaði ég að honum ÚT UM ALLT! Það er mjög óheppilegt í ljósi aðstæðna að týna honum núna! Þannig að ég mætti 5 mín. af seint í vinnuna OG álfabikarslaus:-/ Ekki nema sokkaálfurinn sem stelur alltaf sokkunum hennar Svövu hafi stolið bikarnum mínum. Ég skal sko finna hann í fjöru! Ekki samt hafa áhyggjur, ég myndi sko aldrei meiða hann. Það er ljótt að vera vondur við álfa! Þá fær maður e-ð miklu verra en frunsu.
Vá, ég get ekki skrifað meira. Er öll á iði. Er farin til mömmu og pabba og gera ráðstafanir fyrir útflutninginn. Íslendingar flytja sem sagt út fisk, vatn og Bjarney.
Gotta go, bless á meðan...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli