Já, skál í botn og annað í hárið svínvirkar! Náði meirsegja að draga Jóa niðrá mitt neðsta plan og skála við mig í botn. En þar sem hann náði ekki að klára þá þurfti restin að fara í hárið og þar sem hann er hobbiti þá eru punghárin það næsta sem kemst hausnum honum þannig að ég vona kvenþjóðarinnar vegna að hann hözzli ekki í kvöld! Neh, bara að djóka. Audda kláraði hann, hann er svo vel upp alinn drengurinn. Búinn að þola nöldrið í mér síðustu mánuði! Það var soldið fyndið á einni æfingunni þegar hann var að gera og ég stóð yfir honu: "hægar tilbaka, réttu alveg úr o.s.frv." Þá æpti hann (eins og kelling of course) "Bjarney, það er þér að kenna að ég á ekki kærustu!!!!! *skvík* Og var þá að vísa til þess að hann væri kominn með nóg af nöldri! hehe. Það var samt mjöööög gott move hjá honum þar sem það var rosa sætur gaur að lyfta nálægt og þá vissi hann sem sagt að við værum ekki saman. Það væri reyndar líka soldið afkáralegt par, hlunkurinn og hobbitinn! tíhí
Svo áðan spurði ég Boga kærastann hennar Fíupíu hvort hann myndi líta við stelpu með lokk í vörinni (þ.e.a.s ef hann væri á lausu!) og hann stamaði sko soldið fyrst en svo sagði hann eftir smá umhugsun:" sko, tattú og piercing er ekki alveg my thing svo að ég get ekki svarað þessu EN hins vegar ef ég myndi hitta stelpu með svona í smettinu og myndi byrja að tala við hana og það væri e-ð í hausnum á henni þá myndi ég kannski líta framhjá lokknum. Svo getur mar alltaf tekið lokkinn úr seinna! ;o) Bara svo að þið vitið það þá var Fia vitni að samtalinu þannig að þetta var alls ekkert óviðeigandi! En þar sem ég hélt að Einstein hefði funið upp ljósaperuna þá er nokkuð ljóst að möguleikar mínir á að eignast kærast fara sífellt þverrandi..!
Svo kom Fía með soldið sætt comment, hún sagði að ég væri ein af fáum sem skrifaði geðveikt löng blogg sem hún myndi samt nenna að lesa! (það hlýtur að vera gott!) en svo reyndar bætti hún við:" Það gæti reyndar verið af því að letrið er svo stórt"
Jæja, þar fór það. En eins og mér einni er lagið þá tek ég þessu algjörlega sem hrósi og verð á egórippi það sem eftir er kvölds:oD
Reyndar verð ég alltaf jafn hissa á að heyra frá fólki sem virkilega nennir að lesa bloggið mitt en ég hef alltaf jafn gaman af því að lesa það. En ég er kannski örlítið hlutdræg...
Úff, ég er orðin fúllur. Gotta go. Tollurinn biður spakur á kantinum, AmaRÚLAR:oD
Engin ummæli:
Skrifa ummæli