Góðu fréttirnar eru þær að bíllinn hennar Hafrúnar er fundinn! Var skilinn eftir fyrir utan Max1 bílavaktina og maðurinn þar hringdi í Höbbu af því að hún er skráð meðeigandi (er sem sagt hluthafi í bílnum (þetta var fyrir Snorra;o))) honum (Max1 kallinum) fannst svo skrýtið að bíllinn hafði staðið þar í 3 daga. Bíllinn er, að ég held, algjörlega óskemmdur en ég á eftir að fá nánari update um hvort e-ð tjón hafi orðið.
Slæmu fréttirnar eru þær að Valur tapaði fyrir ÍBV í gær og ÍBV þar með orðnar Íslandsmeistarar. En eins og Hafrún orðaði það eitt sinn, Valsstelpurnar eru allavegna Íslendingameistarar þar sem ÍBV er aðallega skipað útlenskum atvinnumönnum. En ég er allavegna stolt af stelpunum mínum og þetta fer í reynslubankann sem verður nýttur í botn á næstu leiktíð þegar bikarinn kemur á Hlíðarenda:o)
Engu fréttirnar eru þær að líf mitt er mjög viðburðarlítið þessa dagana. Bara massívar æfingar og mikil vinna. En ég get glatt ykkur með því a magavöðvarnir verða æ sýnilegri með hverjum deginum, eða ætli það gleðji mig ekki mest!! :oD
But duty calls.
Heyrumst síðar....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli