fimmtudagur, maí 20, 2004

Dagur 2

Svaf eins og hænuungi í nótt og vaknadi ekki fyrr en kl.11 ad dønskum tíma. Fékk mér smá nammi í morgunmat og herbó-te í eftrrétt. Klæddi mig svo, tók til æfingadótid, setti smá andlit, upp med vasadiskóid og sólbrillurnar og út med mig. Thad er kaffihús á nedstu hædinni hjá okkur, thannig ad thad var ekkert sérstakt ad koma út, nývøknud og labba framhjá ca. 50 manns sem sátu og spókudu sig í sólinni! Thad var soldid sjokk ad labba beint í flasid á øllu fólkinu! En ég lifdi thad af og sit núna í vinnunni hjá Lísu ad blogga! Mjøøøøg edlileg! Vid ætlum ad skella okkur á æfingu thegar hún er búin.
Reyndar býr hún á 6. hæd thannig ad thad er work out út af fyrir sig! Thad er hellings púl ad komast heim til sín, pant búa á 3. hæd áfram og vera med lyftu!!! Algjør snilld! En ég kem thá allavegna med stinnan rass tilbaka eftir øll trøppuhlaupin:oD

Jæja, hún er búin ad vinna. Erum farnar í ræktina. Ætla svo ad hitta Sigrúnu á eftir. Bara gaman hjá mínum núna:oD

Kem med nýjar upplýsingar sídar, stay tuned...

Engin ummæli: