Ó mæ kræst! Er að horfa á forkeppni Eurovision og þar er hvert lagið öðru verra! Það liggur við að ég hlaupi á vegg bara til að minnka sársaukann við að horfa á þetta!!! En litla ljóskan, ég, gleymi stundum að hugsa hlutina til enda áður en ég læt þá útúr mér! Ég sem sagt fékk panic attack þegar ég vissi að það væri forkeppni í kvöld og mín fyrsta hugsun var:"En ef Ísland kemst ekki áfram?! Hvað verður þá um öll Eurovisionpartýin???" En svo var mér nú sagt að slaka á því Birgitta hefði reddað okkur inn í 10 liða úrslitin í fyrra! Haha, já svona getur maður stundum verið stupid...
Já, á meðan ég man. Þá ætla ég að koma með dæmisögu sem vonandi flestir geta lært á. Þannig er mál með vexti að einn kúnninn minn (a.k.a Eyrún) á kisu. Og einu sinni var alltaf annar köttur að koma inn til þeirra og borða matinn hjá kúnnakisunni. Svo lét hann ekki sjá sig í smátíma. Allt í einu mætti hann aftur á svæðið og hann var staðinn að verki í miðjum klíðum. Hann hljóp út um gluggann og útá götu og þá keyrði bíll á hann og DÓ! Og hvað getum við lært af þessu?? Jú, ekki stela mat frá kisunni hennar Eyrúnar! Þá verðiði fyrir bíl og deyjið sem er miklu verra en að fá frunsu...
Ég er líka vondasta fiskamamman:-/ Ég er ekki ennþá búin að sækja Poppa! Mamma er bara nýbúin að fatta að Poppi sé heima og þar af leiðandi er hann bara nýbúinn að fá að borða. Hann var líka orðinn soldið horaður þegar ég hitti hann síðast. Þar fóru lyftingar fyrir bí. En ég ætla að fara að setja fljótandi kreatín útí vatnið hans og athuga hvort hann verði ekki fljótur að ná fyrra formi. Þarf reyndar að kaupa meiri mat, held að hinn sé búinn. Það kemur mér ekki á óvart þó að fiskaverndarnefnd heimsæki mig á næstunni! Lofa að hætta að vanrækja hann, fer að taka hann með mér á æfingar aftur...
Og talandi um fiska, Bjarney er dáin :o( Blessuð sé minning hennar. Bjarney var sem sagt fiskur sem Gummi átti. Þetta var svona blowfish (Það er ekki þess vegna sem hann var skírður Bjarney!!) og var algjör dúlla (sem er ástæðan fyrir nafngiftinni!) En hinir fiskarnir borðuðu uggana og sporðinn af honum og hann bara dó. Jarðaförin fór fram með mikilli viðhöfn við klósettskálina. Þetta er mikill sorgardagur í fiskasögunni sem og í mannheimum. En þetta sýnir að það er bara pláss fyrir eina Bjarney og það er ÉG! Eða eiginlega, sem betur fer er bara til ein ég. En ég býð allar Bjarneyjar í heiminum velkomnar í að vera til sko. Hef enga fordóma gagnvart öðrum Bjarneyjum. Er bara fegin að það eru ekki til fleiri ég...
Sjáiði hvernig Eurovision er búið að fara með mig, er orðin steik í haus! Er farin að lúlla.
Bless á meðan og passið ykkur á bílunum...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli