Dagurinn í dag er sko búinn að vera nýttur til hins ítrasta. Svaf reyndar út í morgun, drattaðist ekki á fætur fyrr en kl.9:30 en þá var stefnan tekin á æfingu. Ekki veitti manni af smá brennslu eftir allt átið í gær. Kellingin var í ham og brenndi í 1 og 1/2 klukkutíma. Fór svo heim, fékk mér pínu að borða og svo var haldið aftur af stað. Næst var stefnan sett á skautahöllina þar sem ég fór með sem makinn hennar Svövu en vinnan hennar bauð starfsfólki og fjölskyldum þeirra á skauta. Það eru ár og aldir síðan ég hef farið á venjulega skauta og ef ég á að segja eins og er þá fannst mér hálf tilgangslaust að skauta í endalausa hringi. En við vorum þarna í hálftíma og þetta var ansi hressandi. Fórum svo aðeins í Kringluna og svo fór ég aftur á æfinguna. Massaði bakið með Orra og Jóa. Fór heim, borðaði ég restina af Ningsinu mínu og svo skellti ég mér á línuskauta. Jói skutlaði mér útí vesturbæ og ætlaði að sækja mig hjá Víkingsheimilinu en ég hringdi í hann og bað hann um að sækja mig í Nauthólsvíkina, ég var ekki alveg að fatta að þetta var fyrsta skiptið sem ég fer frá því síðasta sumar! Smá ofmat í gangi hjá mínum. Anyways, Jói sótti mig og við fórum og fengum okkur bragðaref:oD Sem við áttum sko alveg skilið..!
Núna ætla ég að skjótast niður í Sporthús og fara í heita pottinn og gufuna. Það verður mjög ljúft og ég efast ekki um það verði algjör sæla að fara að lúlla í kvöld.
Bless á meðan...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli