Með páskaegginu sem ég borðaði í morgun þá er ég búin með 3 stk. og bara 1 eftir. Er samt að ´spá í að afþakka það. Er orðið soooooooldið illt í mallanum:-/ ég kláraði samt ekki alveg eggið í morgun, það var nr.6. Held að ég láti þetta bara gott heita fram að næstu páskum.
Ætla að skella mér á æfingu á eftir og svo að fara í sund með litla liverpool united aðdáandann með mér. Mjög þægilegt að hafa svona kríli sem maður getur fengið lánað til að hafa afsökun fyrir að að fara í rennibrautina. Liti kannski ekki sérstaklega vel út að vera 25 ára, ein í sundi í brjáluðum fíling í stóru rennibrautinni! Og með kúlu á enninu í þokkabót eftir að hafa horft á Gísla Martein (já, ég réð ekki við mig og skallaði vegginn!) En for crying out loud, Ómar Ragnarsson var í heimsókn hjá honum. Ég held að botninum hafi verið náð í gærkvöldi.
Úff, mér er roslalega illt í maganum. Ætla aðeins að fara að liggja á meltunni þar til ég fer í ræktina. Stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli